Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin

Vangaveltur um mögulegan fríverzlunarsamning við Bandaríkin hafa reglulega stungið upp kollinum á liðnum árum og áratugum. Til að mynda greindi fréttavefurinn Axios frá því haustið 2019 að bandarísk stjórnvöld væru að velta fyrir sér möguleikanum á slíkum samningi við Ísland. Ekki þó vegna viðskiptahagsmuna heldur vegna mikilvægrar landfræðilegrar stöðu landsins og áhuga ráðamanna í Washington á því að styrkja stöðu Bandaríkjanna á norðurslóðum.

Flest bendir hins vegar til þess að fríverzlunarsamningur við Bandaríkin sé ekki í kortunum á meðan Ísland er aðili að EES-samningnum. Vandséð er þannig að stjórnvöld í Washington gætu fallizt á það að innfluttar bandarískar vörur til Íslands þyrftu að taka mið af regluverki Evrópusambandsins sem taka þarf upp í gegnum hann og við getum ekki breytt, sem er oft mjög ólíkt því sem gengur og gerist vestra og gjarnan beinlínis hannað til þess að vernda framleiðslu innan þess.

Hafa ber í huga í þessu sambandi að Evrópusambandið er í grunninn tollabandalag en slík bandalög eru í eðli sínu andstaðan við frjáls milliríkjaviðskipti enda markmiðið með þeim fyrst og fremst að vernda framleiðslu innan þeirra fyrir utanaðkomandi samkeppni. Í seinni tíð, samhliða lengst af lækkun tolla á heimsvísu þar til undir það síðasta, hafa tæknilegar viðskiptahindranir í formi regluverks tekið við sem helzta leiðin til þess að viðhalda verndarhyggju í milliríkjaviðskiptum.

Verulegur hluti regluverks Evrópusambandsins á sviði viðskipta er hannaður sem tæknilegar viðskiptahindranir með það fyrir augum að vernda framleiðslu í ríkjum þess en iðulega sagt snúast um neytendavernd. Þar er allajafna um að ræða framleiðslu sem tengist á engan hátt íslenzkum hagsmunum. Misheppnaðar fríverzlunarviðræður Bandaríkjanna og sambandsins á sínum tíma, sem náðu í raun aldrei flugi, snerust enda fyrst og fremst um slíkar tæknilegar viðskiptahindranir.

Fyrir vikið eru íslenzk stjórnvöld í þeirri stöðu að þurfa að gera viðsemjendum sínum um mögulega fríverzlunarsamninga grein fyrir því, áður en formlegar viðræður geta farið af stað, að vegna aðildar Íslands að EES-samningnum þurfi Ísland að taka upp umfangsmikla löggjöf Evrópusambandsins á sviði viðskiptamála sem sé ekki þeirra og þau geti fyrir vikið ekki samið um. Viðsemjendurnir eru því í þeirri stöðu að þurfa að sætta sig við það eða hætta við að hefja viðræður.

Fram kom í greinargerð með drögum að reglugerð um árið, sem breyta átti reglum um matvælamerkingar þannig að nóg væri að hægt væri að nálgast innihaldslýsingar með því að skanna vörur með appi en náðu ekki fram að ganga vegna EES-samningsins, að regluverk sem tekið hafi verið upp í gegnum hann hafi „skapað viðskiptahindrun við nánustu viðskiptalönd Íslands utan EES og minnkað svigrúm EFTA-EES ríkjanna til að gera viðskiptasamninga við ríki utan EES.“

Til stóð upphaflega að Costco á Íslandi yrði útibú frá starfsemi fyrirtækisins í Kanada. Þegar stjórnendur Costco ráku sig hins vegar á EES-samninginn var ákveðið að í staðinn yrði um að ræða útibú frá Bretland sem þá var enn innan Evrópusambandsins. Litlu munaði að hætt yrði við opnun verzlunarinnar, Fyrir vikið hafa fyrst og fremst evrópskar vörur verið í boði í Costco á Íslandi, ekki sízt brezkar, en mun minna af bandarískum og kanadískum en hugmyndin var upphaflega.

Hlutdeild vöruinnflutnings frá Bandaríkjunum í veltu heildsölufyrirtækisins Innnes hefur dregizt verulega saman á liðnum árum. Ástæðan er einkum regluverk Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn og mikill kostnaður vegna þess. Ekki sízt við endurmerkingar varnings. Til að mynda hætti Innnes að flytja inn bandarískt kex a sínum tíma af þeim sökum. Mörg fleiri dæmi er hæglega hægt að nefna í þessum efnum um viðskiptahindranir í regluverki í gegnum samninginn.

Með öðrum orðum er EES-samningurinn, sem greiða átti fyrir viðskiptum við Evrópusambandið, í vaxandi mæli hindrun í vegi viðskipta við aðra markaði sem eru miklu fremur markaðir til framtíðar. Ísland er utan tollamúra sambandsins en vegna aðildarinnar að samningnum innan regluverksmúra þess. Regluverkið sem taka þarf upp í gegnum hann markar þannig í raun svigrúmið sem íslenzk stjórnvöld hafa til þess að semja um fríverzlun við önnur lönd og markaðssvæði.

Við þetta bætist að regluverkið í gegnum EES-samninginn er gjarnan afar íþyngjandi fyrir íslenzkt atvinnulíf óháð allri gullhúðun. Fram hefur komið í skýrslum fyrir Evrópusambandið, líkt og Draghi-skýrslunni, að regluverk þess væri að skaða verulega samkeppnishæfni þess. Gjarnan er sagt að samningurinn geri íslenzkt atvinnulíf samkeppnishæft á við atvinnulíf annarra ríkja innan EES en nær er að segja að hann geri hérlent atvinnulíf jafn ósamkeppnishæft og það.

Til að mynda kemur fram í skýrslu ráðgjafanefndar um opinberar eftirlitsreglur frá árinu 2016, einu rannsókn sinnar tegundar, að mikill meirihluti íþyngjandi löggjafar fyrir atvinnulífið kæmi frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn og að dræman árangur í einföldun íþyngjandi regluverks hér á landi mætti einkum rekja til þess að slíkt regluverk kæmi aðallega þaðan og væri ekki hægt að breyta. Þá hefði gullhúðun á regluverki frá sambandinu átt sér stað í þriðjungi tilvika.

Hins vegar er leið út úr þessum aðstæðum sem ríki heimsins kjósa allajafna að fara þegar þau semja um viðskipti sín á milli. Ekki sízt stærstu efnahagsveldin með sína miklu viðskiptahagsmuni. Nútímalegur víðtækur fríverzlunarsamningur eins og við gerðum með góðum árangri við Bretland í stað EES-samningsins. Leið sem ólíkt EES-samningnum felur ekki í sér hindranir í viðskiptum við önnur ríki, upptöku íþyngjandi regluverks eða vaxandi framsal valds yfir eigin málum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 15. september 2026)

(Ljósmynd: Þinghús Bandaríkjanna í Washington. Eigandi: Fulltrúadeild Bandaríkjaþings)