Merkileg frétt birtist á Vísi fyrr í vikunni þar sem fram kom að stjórnvöld í Bandaríkjunum hefðu hótað tollum á innfluttar vörur frá Íslandi vegna hvalveiðanna hér á landi samkvæmt heimildum fréttastofunnar. Hótanir hefðu einnig borizt frá Evrópusambandsríkjum. Síðar kom fram að allavega hefðu óformlegar hótanir um tolla komið upp í samskiptum við Bandaríkin og „einstaka Evrópusambandsríki.“ Þetta var ekki skýrt frekar eða hvaða heimildir væri um að ræða.
Fram kom að til stæði að leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um hvalveiðar í febrúar og haft eftir Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnulegaráðherra að gera mætti ráð fyrir því að veiðarnar yrðu bannaðar. Einkum vegna dýravelferðar og viðskiptahagsmuna þjóðarinnar. Sagði hún enga markaði vera fyrir hvalaafurðir og tollum væri beitt meira en áður. Spurð um umræddar hótanir sagði Hanna Katrín: „Ég hef heyrt af einhverju slíku, já, en ég get ekki staðfest það.“
Fyrir það fyrsta er auðvitað merkilegt sjónarmið að rétt sé að stjórnvöld banni tiltekna atvinnustarfsemi vegna þess að þau telji ekki markað fyrir afurðirnar. Í annan stað er að sama skapi furðulegt að stjórnvöld skuli vísa einungis til þess að tollum væri meira beitt í dag en áður en ganga ekki úr skugga um það hvort eitthvað slíkt stæði í reynd til vegna hvalveiðanna áður er það er notað sem rök fyrir því að banna starfsemina. Sönnunarbyrðin er vitanlega á herðum stjórnvalda.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
