Hafa fjármagnað báðar hliðar í stríðinu

Viðleitni Evrópusambandsins til þess að verða óháð rússneskri olíu og gasi er á fallandi fæti á sama tíma og veturinn er handan við hornið og uppsafnaðar vetrarbirgðir ríkja sambandsins af gasi eru mun minni en fyrri ár. Þetta kemur fram í skýrslu endurskoðendasviðs Evrópusambandsins samkvæmt frétt Reuters 9. september síðastliðinn.

Til hefur staðið að endanlega verði lokað á innflutning á fjótandi gasi frá Rússlandi til Evrópusambandsins um áramótin og gasi um leiðslur næsta sumar. Dregið hefur mjög úr innflutningi á rússneskri orku til ríkja sambandsins frá innrásinni í Úkraínu en enn er umtalsvert magn einkum gass flutt til þeirra. Þá hafa ríkin að undanförnu hamstrað það.

Tólf prósent af gasinnflutningi til Evrópusambandsins kemur nú frá Rússlandi en var 45% árið 2022. Komið hefur hins vegar fram í máli stjórnmálamanna innan sambandsins að ríki þess hefðu frá innrásinni greitt álíka mikið fyrir rússneska orku og þau hefðu styrkt Úkraínumenn í stríðinu við Rússland. Með öðrum orðum fjármagnað báðar hliðar.

Fram kemur í skýrslunni að Evrópusambandið og ríki þess hafi ekki fjárfest nóg í orkuinnviðum og ekki tryggt sér nægan aðgang að orku annars staðar frá til þess að geta hætt kaupum á orku frá Rússlandi. Minni kaup á rússneskri orku væru fremur vegna milds veðurs og hás orkuverðs og þar með minni eftirspurnar en stefnumótandi aðgerða.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Húsakynni ríkisstjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: almathias)