Haustið 2022 hættu viðskipti á milli Íslands og Bretlands grundvallast á EES-samningnum í kjölfar útgöngu Breta úr Evrópusambandinu með tilkomu víðtæks fríverzlunarsamnings á milli landanna sem þá tók gildi til bráðabirgða en hafði verið undirritaður árið áður. Fríverzlunarsamingurinn tók síðan endanlega gildi 1. febrúar 2023 og hafa viðskipti Íslands við Bretland, annað stærsta viðskiptaland okkar á eftir Bandaríkjunun, síðan þá farið fram á grundvelli hans.
Með öðrum orðum skipti Ísland EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning við Bretland án þess að nokkuð færi á hliðina í samskiptum landanna. Hagsmunaaðilar lýstu því enda yfir í kjölfar þess að samningurinn lá fyrir að viðskiptahagsmunir Íslands hefðu verið tryggðir með jafngóðum hætti og áður var með EES-samningnum og hið sama gerði meira að segja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem nú er utanríkisráðherra og hefur sem slíkur áréttað það enn frekar.
Til dæmis sagði Þorgerður í grein á Vísir.is í júní 2021 í kjölfar undirritunar fríverzlunarsamningsins að tekizt hefði með honum „að tryggja nákvæmlega sama ástand“ og verið hefði við lýði áður en Bretar yfirgáfu Evrópusambandið og EES-samninginn. Í ræðu á Alþingi 12. maí á síðasta ári um utanríkis- og alþjóðamál sagði hún enn fremur: „Langstærstur hluti viðskipta Íslands er við Evrópu og fer fram á grunni EES-samningsins og síðan góðra samninga við meðal annars Bretland.“
Hitt er svo annað mál að hagsmunir Íslands hafa í reynd verið miklu betur tryggðir með fríverzlunarsamningnum við Bretland en raunin var áður í gegnum EES-samninginn. Þannig hafa ekki aðeins viðskiptahagsmunir landsins verið tryggðir með fríverzlunarsamningnum heldur felur hann ekki í sér sífelldar kröfur um framsal valds til viðsemjandans líkt og í tilfelli EES-samningsins og vaxandi einhliða upptöku íþyngjandi regluverks frá honum sem ekki verður metið til fjár.
Takmarkaður ávinningur af EES
Fjallað var um það á vefsíðu utanríkisráðuneytisins í marz á síðasta ári að íslenzkir útflytjendur hefðu notið minnst 33 milljarða króna ávinnings af tollfríðindum á síðasta ári í gegnum EES-samninginn og fríverzlunarsamninga sem gerðir hafa verið á grundvelli aðildar Íslands að EFTA samkvæmt úttekt ráðuneytisins, Skattsins og skrifstofu EFTA í Brussel. Þar af mætti rekja 26,6 milljarða til fríðinda vegna EES-samningsins og tengdra viðskiptasamninga við Evrópusambandið.
Fram kom enn fremur að úttektin sýndi fram á tollsparnað að andvirði 14,6 milljarða króna vegna útflutnings á áli til Evrópusambandsins og 12 milljarða tollsparnað af útflutningi sjávarafurða til sambandsins og Bretlands. Mögulega gæti einhver hrapað að þeirri ályktun að úttektin væri til marks um ávinning af aðildinni að EES-samningnum en svo er þó ekki í raun nema að litlu leyti þar sem stærstur hluti þessara tollkjara var þegar til staðar fyrir daga samningsins.
Komið var þannig á fullt tollfrelsi fyrir útfluttar iðnaðarvörur, þar á meðal ál, um 1980 í gegnum fríverzlunarsamning Íslands við Evrópusambandið (þá Efnahagsbandalag Evrópu) frá 1972 sem enn er í fullu gildi. Hið sama átti við um stóran hluta útfluttra sjávarafurða. Fyrir vikið hefur útflutningur á þeim til sambandsins farið fram á grundvelli fríverzlunarsamningsins í gegnum bókun 9 við EES-samninginn sem kveður á um að gilda skuli hagstæðustu kjör sem samið hafi verið um.
Með orðalaginu um viðskiptasamninga tengda EES-samningnum er verið að vísa til fríverzlunarsamningsins frá 1972 auk tvíhliða samnings við Evrópusambandið frá 2018 um tollfríðindi fyrir óunnar landbúnaðarafurðir. Fríverzlunarsamningurinn er alls óháður EES-samningnum og heyrði sá síðarnefndi sögunni til yrði hinn fyrir vikið áfram í gildi. Áðurnefnd 26,6 milljarða króna tollfríðindi yrðu þannig áfram fyrir hendi að mestu leyti þó EES-samningsins nyti ekki lengur við.
Réttlæting fyrir því að kyngja öllu
Mikilvægt er að hafa í huga í þessu sambandi að við Íslendingar höfum aldrei notið fulls tollfrelsis með sjávarafurðir í gegnum EES-samninginn. Á sama tíma hefur Evrópusambandið samið um fullt tollfrelsi með sjávarafurðir við Kanada, Japan og Bretland í gegnum víðtæka fríverzlunarsamninga eins og ríki heimsins kjósa að semja um sín á milli í dag. Ítrekaðar tilraunir stjórnvalda á liðnum árum til þess að fá sömu tollakjör í gegnum EES-samninginn hafa litlum árangri skilað.
Með öðrum orðum er ljóst að ávinningur Íslands af EES-samningnum með tilliti til tollfríðinda umfram fríverzlunarsamninginn frá 1972 er ekki sérlega mikill í stóra samhenginu. Mögulega í kringum fjórir milljarðar. Álíka og í tilfelli Bretlands eins. Á móti er gríðarlegur kostnaður af aðildinni að samningnum vegna íþyngjandi regluverks frá Evrópusambandinu sem taka þarf upp í gegnum hann fyrir utan vaxandi framsal valds yfir íslenzkum málum sem fyrr segir verður ekki metið til fjár.
Meintur gríðarlegur efnahagslegur ávinningur af EES-samningnum hefur iðulega verið notaður sem réttlæting fyrir því að kyngja öllu sem við fáum frá Brussel í gegnum hann. Meðal annars að bókun 35 við samninginn verði innleidd með þeim hætti að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu gangi framar innlendum lögum sem virtir lögspekingar hafa varað við að fari gegn fullveldisákvæðum stjórnarskrárinnar. Fullyrðingar um slíkan gríðarlegan ávinning standast þó enga skoðun.
Hagsmunir Íslands og íslenzku þjóðarinnar hljóta alltaf að vera markmiðið þegar kemur að tengslum Íslands við umheiminn. Einstakir samningar geta aldrei verið markmið í sjálfu sér. Sama hversu góðir einhverjir kunna að halda að þeir séu. Þeir eru einungis verkfæri til þess að vinna að þeim hagsmunum og ef mögulegt er að tryggja þá betur með öðrum hætti hlýtur að vera rétt að taka það til alvarlegrar skoðunar. Nema eitthvað annað en hagsmunir lands og þjóðar séu markmiðið.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Birtist áður í Morgunblaðinu 22. september 2026)
(Ljósmynd: Ríkisfáni Íslands á Þingvöllum. Eigandi: Forsetaembætti Úkraínu)
