Hvert félag sjálfstæðimanna í Suðurkjördæmi á fætur öðru hefur að undanförnu sent frá sér yfirlýsingu og hvatt Guðrúnu Hafsteinsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, til þess að gefa kost á sér til formennsku í flokknum.
Til að mynda sjálfstæðisfélögin og fulltrúaráðið í Árborg, Sjálfstæðisfélag Hveragerðis, Félag sjálfstæðismanna í Ölfusi, Sjálfstæðisfélag Reykjanesbæjar og Sjálfstæðisfélag, Félag ungra sjálfstæðismanna og fulltrúaráð Austur-Skaftafellssýslu.
Vakið hefur hins vegar athygli að á sama tíma hafi ekkert félag sjálfstæðismanna í kjördæmi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, Reykjavík suður, hvatt hana til framboðs áður en hún lýsti því yfir á sunnudaginn.
Hið sama á við um Guðlaug Þór Þórðarson, þingmann Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík norður. Slíkar yfirlýsingar hafa verið vel þekktar og þótt ákveðið styrkleikamerki fyrir frambjóðendur en að þessu sinni skort í tilfelli annarra en Guðrúnar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)