Hræðsluáróður fyrir neðan allar hellur

Hversu oft fengum við að heyra það í kosningabaráttunni í aðdraganda þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið, úr röðum þeirra sem vildu hefja inngöngu í það og ekki sízt frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, að við þyrftum að ganga í sambandið til að verjast mögulegri innrás frá Bandaríkjunum? Þetta var eitt af lykilatriðunum í málflutningi þeirra. Bandaríkin væru stórhættuleg, þeim væri ekki treystandi og engin trygging fælist í varnarsamningnum.

Hamrað var á þessu í umræðunni af hálfu Evrópusambandssinna, greinar skrifaðar og lögð áherzla á það í þáttum og á fundum. Hræða átti okkur inn í Evrópusambandið samhliða meðal annars tali um að koma myndi fram í samningi um inngöngu Íslands í sambandið hvaða vextir yrðu í boði í framtíðinni innan þess, hversu mikil verðbólgan yrði og jafnvel hvert matvælaverðið yrði. Eins og til dæmis bæði Þorgerður og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra héldu fram.

Vísað var til þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði hótað því að taka Grænland með hervaldi. Fullyrt var gjarnan eða gert að því skóna að Ísland yrði næst. Trump minntist einu sinni á Ísland í þessum efnum, í ræðu á fundi Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) í Davos í janúar. Þó ekki um mögulegt hernám landsins. Ljóst þótti hins vegar að hann hefði farið landavillt og átt við Grænland og skömmu síðar staðfestu bandarísk stjórnvöld og sú hefði verið raunin.

Trump lýsti því hins vegar einnig yfir í ræðunni í Davos að hann ætlaði ekki að beita hervaldi í tilfelli Grænlands. Fróðlegt er annars að skoða upphaf umræðunnar um mögulega beitingu hervalds. Hún hófst á blaðamannafundi á heimili Trumps í Mar-a-Lago 7. janúar 2025 þegar blaðamaður spurði hann hvort hann gæti veitt heimsbyggðinni fullvissu um það að ekki yrði beitt hervaldi eða viðskiptaþvingunum í þeim efnum. Sagðist hann hvorki geta það né skuldbundið sig til þess.

Ég benti á það í pistli á Stjórnmálin.is daginn eftir ræðu Trumps í Davos að hann væri einfaldlega að gera það sem hann þekkti úr viðskiptalífinu, að prútta. Setja fram fáránlega kröfu til þess að fá að loks það sem hann vildi í raun. Sama á við um tollamálin. Viðbrögð forystumanna í Evrópu við orðum hans voru klárlega að hans mati tækifæri í þeim efnum. Trump hefur aldrei farið eftir viðteknum reglum í alþjóðasamskiptum, kann þær líklega ekki en samt er alltaf gert ráð fyrir því.

Talað er gjarnan um að óábyrgt sé að taka því ekki alvarlega sem frá Trump kemur. Hversu fáránlegt sem það hljómi. Vissulega er rétt að taka því alvarlega upp að vissu marki. Maðurinn er forseti Bandaríkjanna. Það er annað mál að fara af hjörunum vegna þess. Eða nota það sem hræðsluáróður. Nú hafa stjórnvöld á Grænlandi og í Danmörku komizt að samkomulagi við Bandaríkin um að þau sjái um grænlenzk varnarmál sem virðist vera útvíkkun á fyrri varnarsamningi.

Með öðrum orðum hefur verið gert nýtt samkomulag við Bandaríkin, sem hérlendir Evrópusambandssinnar héldu fram linnulaust í aðdraganda þjóðaratkvæðisins að væri ekki treystandi, væru stórhættuleg og gætu hreinlega ráðist á Ísland þó ekkert benti til þess að hætta væri á slíku, um varnir Grænlands. Landsins sem átti að vera í stórhættu vegna mögulegrar innrásar þessara sömu Bandaríkja. Þessi málflutningur var auðvitað langt fyrir neðan allar hellur.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: Stjórnarráðið)