„Framsalið á valdinu verður alltaf meira“

„Mér skilst að við höfum innleitt mörg þúsund ESB-gerðir á þremur áratugum ofan á alla reglu- og lagasetningu okkar sjálfra um allt og ekkert. Allar eru þessar reglur meira og minna íþyngjandi en gjarnan til að auka öryggi okkar með tilheyrandi eftirliti,“ segir Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni þar sem hann gerir að umtalsefni það regluverk sem innleitt er hér á landi í gegnum aðildina að EES-samningnum.

Málið hefur áður verið Brynjari tilefni til lýsa afstöðu sinni til þess. Til að mynda í þættinum Þingvöllum á K100 11. nóvember 2018 þar sem hann sagði meðal annars: „Þetta er vandinn við þennan samning [EES-samninginn]. Það sem gerist alltaf er að það er alltaf gengið lengra og lengra. Framsalið á valdinu verður alltaf meira og meira. Þá er spurningin: Eigum við alltaf að teygja okkur lengra í þessa átt eða eigum við að spyrna niður fæti og segja: „Þetta er orðið eitthvað of mikið“?“

„Mér finnst ég gera lítið annað á þinginu en að innleiða einhverjar reglur frá Evrópusambandinu,“ sagði Brynjar enn fremur, í Bítinu á Bylgjunni 3. febrúar 2014. Þingmenn væru jafnvel að innleiða meira en þyrfti að gera vegna þess að stjórnsýslan réði engan veginn nógu vel við það verkefni að fylgjast með regluverksframleiðslu sambandsins. Sagðist hann aðspurður telja að fæstir þingmenn vissu í raun hvað þeir væru að samþykkja. Skilaboðin væru einungis að þetta ætti að innleiða.

„Það eru alls konar hlutir í þessum samningi [EES-samningnum] sem ég hef aldrei skilið af hverju við þurfum að fara eftir regluverki þeirra [Evrópusambandsins] með. Mér finnst það ekki einu sinni tengjast þessum innri markaði í raun,“ sagði Brynjar enn fremur með vísan til íþyngjandi og kostnaðarsams regluverks sem tekið er upp í gegnum EES-samninginn fyrir bæði atvinnulífið og almenning. „Það er svo dýrt, aðgöngumiðinn að þessum innri markaði er rándýr fyrir okkur.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fánar aðildarrríkja EFTA ásamt fána Evrópusambandsins. Eigandi: EFTA)