Meiri bragur að uppgjöf fyrir fram?

Versta mögulega staðan sem gæti komið upp, næði frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um bókun 35 við EES-samninginn ekki fram að ganga og málið færi í kjölfarið mögulega fyrir EFTA-dómstólinn, væri sú að komizt yrði að þeirri niðurstöðu að stjórnvöldum bæri að verða við kröfu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu gangi framar löggjöf sem er innlend að uppruna. Með öðrum orðum það sem frumvarpið felur í sér. Um er þannig að ræða fyrir fram uppgjöf án þess að fyrst sé í það minnsta látið reyna á málið fyrir dómi.

Við Íslendingar gerðumst aðilar að EES-samningnum fyrir rúmum 30 árum síðan á ákveðnum forsendum til þess að hægt væri að færa fyrir því lagaleg rök að aðildin stæðist stjórnarskrá lýðveldisins sem þó var umdeilt. Ein helzta forsendan var sú að bókun 35 við samninginn væri innleidd hér á landi sem lögskýringarregla en ekki forgangsregla eins og til stendur með frumvarpi utanríkisráðherra. Að öðrum kosti hefði þurft að breyta stjórnarskránni sem aftur hefði þýtt að ekki hefði verið þingmeirihluti fyrir samningnum þar sem þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefði ekki stutt hann.

Fari málið fyrir EFTA-dómstólinn er möguleiki á því að niðurstaðan verði Íslandi í vil en með frumvarpi utanríkisráðherra er hann að engu gerður. Teljist afgreiðsla málsins með frumvarpinu ekki fullnægjandi að mati ESA mun stofnunin eðli málsins samkvæmt hóta stjórnvöldum aftur samningsbrotamáli. Tal um að Alþingi geti alltaf sett lög andstæð regluverki sem innleitt hefur verið í gegnum EES-samninginn heldur ekki vatni. Hvaða líkur geta talizt á því að þingið muni fara gegn ESA varðandi eina innleidda lagagerð frá Evrópusambandinu þegar ekki er lagt í það þegar allt regluverkið er undir?

Minnir óþægilega á Icesave-málið

Tal um að meiri bragur sé að því „að leysa málið hér heima“ en að það fari fyrir erlendan dómstól, eins og Þorgerður hefur orðað það, nær engri átt þegar fyrir liggur að hin meinta lausn felur einfaldlega í sér uppgjöf í málinu. Fjölmörg mál, bæði stór og smá, sem varða Ísland hafa farið fyrir EFTA-dómstólinn. Hlutverk dómstólsins er samkvæmt EES-samningnum að skera úr um það ef ágreiningur er um túlkun samningsins. Telji utanríkisráðherra að ekki sé góður bragur á því að mál fari fyrir EFTA-dómstólinn verður það fyrir vikið vart túlkað með öðrum hætti sem andstaða við aðildina að EES-samningnum.

Málið minnir fyrir vikið að ýmsu leyti óþægilega á Icesave-málið á sínum tíma. Þá átti til að mynda líkt og nú að gefast upp fyrir fram í stað þess að láta fyrst reyna á málið fyrir EFTA-dómstólnum þar sem Ísland hafði að lokum sigur í stað þess að samþykkja einfaldlega kröfur ESA. Sami málflutningur var viðhafður þá og heyrist nú. Málið mætti alls ekki fara fyrir dómstóla enda yrði niðurstaðan þá mögulega miklu verri án þess að útskýrt væri í hverju það fælist. Vinstristjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ætlaði einmitt að sama skapi að leysa málið innanlands án þess að það færi fyrir dómstóla.

Miklir fjárhagslegir hagsmunir voru undir í Icesave-málinu en málið snerist engu að síður aðeins um eina tiltekna löggjöf frá Evrópusambandinu. Tilskipun þess um innistæðutryggingar. Frumvarp utanríkisráðherra varðar hins vegar alla löggjöf sem hefur verið og mun verða tekin upp hér á landi í gegnum EES-samninginn og gerir hana í reynd æðri annarri almennri lagasetningu af þeirri einu ástæðu að hún kemur frá sambandinu. Forgangsreglan yrði þannig almenn og ætti við um allar aðstæður þar sem almenn löggjöf stangaðist á í þessum efnum sama hvaða löggjöf væri um að ræða.

Tímabært að kúrsinn sé leiðréttur

Haldið var uppi vörn gegn kröfum ESA árum saman og ekki sízt á vakt Sjálfstæðisflokksins í utanríkisráðuneytinu undir skeleggri forystu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þar sem hann naut dyggrar aðstoðar Diljár Mistar Einarsdóttur sem nú er þingmaður flokksins. Eiga þau mikið hrós skilið fyrir það. Meðal annars var þar bent á árekstur forgangsreglu og stjórnarskrárinnar. Skyndilegur viðsnúningur varð hins vegar eftir að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tók við ráðuneytinu í kjölfar þingkosninganna 2021 sem aldrei hefur verið skýrður og tekið undir kröfur ESA gegn Íslandi.

Framganga Þórdísar á undanförnum mánuðum hefur þó varpað ljósi á viðsnúninginn þar sem hún hefur opinberað jákvæða afstöðu sína til inngöngu í Evrópusambandið og haft á orði að hún hefði ekki getað tjáð sig með þeim hætti hefði hún orðið formaður Sjálfstæðisflokksins. Þau orð verða vart skilin á annan veg en þann að hún hafi ekki verið heiðarleg gagnvart okkur sjálfstæðismönnum varðandi raunverulega afstöðu hennar í þeim efnum. En betra er víst seint en aldrei. Skyndilegan viðsnúning hennar varðandi bókun 35 verður hins vegar eðli málsins samkvæmt að skoða í því ljósi.

Viðsnúningur Þórdísar var frávik í þessum efnum. Afstaða Sjálfstæðisflokksins hefur þess utan lengst af verið skýr. Allt frá því að flokkurinn stóð að aðild Íslands að EES-samningnum á sínum tíma meðal annars og ekki sízt á þeim forsendum að bókun 35 yrði innleidd sem lögskýringaregla en ekki forgangsregla með hliðsjón af fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar. Að sama skapi hélt Sjálfstæðisflokkurinn uppi vörnum í málinu lengst af þar til Þórdís sneri við blaðinu í þeim efnum vegna eigin afstöðu til Evrópusambandsins sem samrýmist ekki stefnu flokksins. Tímabært er að kúrsinn sé leiðréttur.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 29. september 2026)

(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)