Felur í sér röng skilaboð til umheimsins

Verði umsóknin um inngöngu Íslands í Evrópusambandið ekki dregin formlega til baka felast í því þau skilaboð til umheimsins að til standi að taka aftur upp þráðinn síðar. Annars er vitanlega enginn tilgangur með áframhaldandi tilvist umsóknarinnar. Þetta getur til að mynda hæglega skapað hindranir í vegi þess að semja um fríverzlun við önnur ríki.

Haustið 2009 settu ráðamenn í Kína viðræður við Ísland um fríverzlunarsamning einhliða á ís. Ástæðan var fyrst og fremst sú að sumarið áður höfðu íslenzk stjórnvöld sent inn umsókn um inngöngu í Evrópusambandið. Með því að ganga í sambandið falla úr gildi allir fríverzlunarsamningar sem viðkomandi ríki hafa samið um fyrir inngönguna í það.

Fyrr í mánuðinum hélt Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, því fram í Dagmálum að kosturinn við það að draga umsóknina ekki til baka væri sá að ríki Evrópusambandsins þyrftu þá ekki að samþykkja hana aftur yrði farið af stað með málið á ný. Það er þó ekki rétt enda er Ísland ekki með samþykkta umsókn eins og staðan er í dag.

Með bréfi Gunnars Braga Sveinssonar, þáverandi utanríkisráðherra, til Evrópusambandsins 2015 var því lýst yfir að Ísland væri ekki lengur „candidate country“ sem er sú staða sem ríki fær eftir að umsókn þess hefur verið samþykkt af ríkjum sambandsins. Var Ísland í kjölfarið tekið af þeim lista Evrópusambandsins. Samþykki ríkjanna þyrfti því aftur.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Oddvitar ríkisstjórnarflokkanna. Eigandi: Stjórnarráðið)