Haft var eftir Marit Schage Andria, framkvæmdastjóri innrimarkaðsmála hjá EFTA, á fréttavefnum Euractiv 22. september að 807 lagagerðir frá Evrópusambandinu hefðu verið teknar upp í EES-samninginn á síðasta ári. Þær hefðu aldrei verið fleiri á einu ári. Hér áður hefðu gerðirnar verið meira en helmingi færri árlega og þær hefðu ekki verið eins flóknar.
„Fyrir tólf eða fimmtán árum vorum við með 300 til 400 gerðir af lagagerðum. Ef viðfangsefnið var samgöngur þá var það samgöngur. Nú erum við með Green Deal. Við erum með innri og ytri þætti. Það er svo margt sem kemur við sögu sem gerir allt flóknara,“ sagði Schage Andria. Þetta væri eitt af því sem hægði á innleiðingu EFTA/EES-ríkjanna á gerðunum.
Haldbær rök hafa aldrei verið færð fyrir fullyrðingum um að Ísland tæki upp mikinn meirihluta regluverks Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn. Hins vegar er ljóst að sá hlutur hefur jafnt og þétt stækkað. Samkvæmt utanríkisráðuneytinu var hlutdeildin 6,5% árið 2005. Rúmum áratug síðar var hlutfallið orðið 13,4% og er í dag líklega í kringum 25%.
Viðskipta- og atvinnulífið hér á landi hefur á undanförnum árum í vaxandi mæli kvartað undan íþyngjandi og kostnaðarsömu regluverki í gegnum EES-samninginn sem hamlaði meðal annars nýsköpun. Þá sýndi skýrsla ráðgjafanefndar um opinberar eftirlitsreglur um árið að íþyngjandi regluverki fyrir atvinnulífið kæmi fyrst og fremst í gegnum samninginn.
Haft var til þannig til dæmis eftir Katrínu Pétursdóttur, forstjóra Lýsis, í áramótablaði Viðskiptablaðsins um síðustu áramót að á meðan tækifærin væru á hverju strái til aukinnar verðmætasköpunar hér á landi væru „það helzt kvaðir og reglufargan frá Evrópusambandinu“ sem leggðu stein í götu þess að hægt væri að grípa þau með vísan í EES-samninginn.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Fánar aðildarrríkja EFTA ásamt fána Evrópusambandsins. Eigandi: EFTA)
