Fylgi Sjálfstæðisflokksins hafði jafnt og þétt aukizt frá því í nóvember á síðasta ári samkvæmt niðurstöðum skoðanakannana Gallups. Þar til í nýjustu könnun fyrirtækisins sem gerð var í september og birt í gær. Fylgi flokksins var komið í tæplega 27% í ágúst en mælist nú 24,7%. Fylgið hefur þannig dregizt saman um tvö prósentustig á milli mánaða.
Fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins átti sér ekki sízt stað samhliða kosningabaráttunni í aðdraganda þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið í lok sumars þar sem forystumenn flokksins og þingmenn hans tóku virkan og áberandi þátt í baráttunni gegn því að setja stefnuna á inngöngu í sambandið ásamt fjölmörgum öðrum sjálfstæðismönnum.
Hvað getur skýrt það að fylgi Sjálfstæðisflokksins dróst allt í einu saman í september samkvæmt könnunum Gallups í fyrsta sinn síðan fyrir ári? Hvaða mál hefur verið í umræðunni í mánuðinum sem getur varpað ljósi á það? Það er í raun aðeins eitt mál sem kemur til greina í þeim efnum. Frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35 við EES-samninginn.
Frumvarpið er fullveldismál eins og þjóðaratkvæðið um Evrópusambandið. Skoðanakannanir hafa sýnt mikinn meirihluta stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins andvígan samþykkt þess. Fulltrúar flokksins hafa lítið tjáð sig um málið í haust en það sem komið hefur frá þeim hefur ekki þótt benda til þess að þeir séu samstíga stuðningsmönnum hans.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur ítrekað dregizt saman þegar bókun 35 hefur verið til umræðu í þjóðfélaginu. Til dæmis haustið 2024 og vorið og haustið 2025. Lengst af var haldið uppi vörnum í málinu af hálfu Sjálfstæðisflokksins þar til Þórdís Kolbrún Gylfadóttir sneri skyndilega við blaðinu sem utanríkisráðherra. Tímabært er að rétta kúrsinn.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
