„Sko, þetta er alltaf svona smá óvissuferð þegar maður leggur af stað í kosningabaráttu. Og hérna, mín starfslýsing var engin. Þannig að, þú veizt, þetta er bara svolítið spurning um að djöflast í alls konar,“ sagði Heiða Kristrín Helgadóttir, fyrrverandi ráðgjafi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra vegna þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið, við Ríkisútvarpið á kosninganóttina í lok síðasta mánaðar innt eftir því um hvað vinna hennar hefði snúizt.
Fram hefur komið í fjölmiðlum að félag í eigu Heiðu Kristinar og eiginmanns hennar hafi fengið 14 milljónir króna greiddar frá utanríkisráðuneytinu vegna ráðgjafastarfa hennar í sex mánuði. Nokkur umræða hefur spunnizt um það hver starfslýsing Heiðu Kristrínar hafi verið eða hvort umræddir fjármunir hafi runnið til hennar úr vösum skattgreiðenda án þess að nokkru slíku hafi verið fyrir að fara. Samkvæmt fyrrnefndum orðum hennar var starfslýsingin hins vegar engin.
Fjórtán milljónir króna á sex mánuðum eru 2,3 milljónir á mánuði fyrir starf sem byggðist ekki á starfslýsingu heldur einfaldlega að gera eitthvað ef marka má orð Heiðu Kristínar sem var áður aðstoðarmaður Þorgerðar um hríð og hið sama á við um eiginmann hennar. Þá var Heiða um tíma varaþingmaður Viðreisnar. Hvort hér sé á ferðinni ásættanleg meðferð skattfjár er fyllilega eðlileg spurning og afar skiljanlegt að fjölmiðlar hafi séð ástæðu til þess að fjalla um málið.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Heiða Kristrín Helgadóttir, fyrrverandi ráðgjafi utanríkisráðherra. Eigandi: Skjáskot úr viðtali Ríkisútvarpsins)
