Tekið verði til varna fyrir Ísland

Tekin var ákvörðun um það í gærmorgun af Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) að höfða samningsbrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35 við EES-samninginn. Einn þeirra sem stóðu að þeirri ákvörðun var Árni Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og einn þriggja stjórnarmanna stofnunarinnar.

Fram kom í máli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í fjölmiðlum í gær að hún teldi að ESA myndi draga málsóknina til baka ef frumvarp hennar um málið næði fram að ganga. Hins vegar er deginum ljósara að stofnunin mun ekki gera það nema kröfur hennar verði að fullu uppfylltar. Sem frumvarpið felur einmitt í sér.

Með öðrum orðum eru tveir kostir í stöðunni sem fyrr. Gefast upp fyrir fram upp fyrir kröfum ESA með samþykkt frumvarps Þorgerðar eða láta reyna á málið fyrir EFTA-dómstólnum. Fari málið fyrir dómstólinn er í það minnsta möguleiki á því að hann úrskurði Íslandi í vil en með samþykkt frumvarpsins væri sá möguleiki að engu gerður.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Ríkisfáni Íslands á Þingvöllum. Eigandi: Forsetaembætti Úkraínu)