Kæmi til þess að Bretland gengi aftur í Evrópusambandið yrði það ekki á sömu forsendum og áður. Bretar yrðu þá að uppfylla sömu inngönguskilyrði og aðrir og fengju ekki þær undanþágur sem þeir höfðu áður innan þess. Þetta sagði Emmanuel Macron, forseti Frakklands, á blaðamannafundi með Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, í Madrid í gær.
Forsætisráðherra Bretlands, Andy Burnhams, sagði sama dag að þjóðaratkvæðagreiðsla um inngöngu í Evrópusambandið yrði mögulega í stefnu Verkamannaflokksins fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi sumarið 2029. Aðspurður sagðist hann þó ekki útiloka að innganga í sambandið yrði sett á dagskrá af flokknum án þjóðaratkvæðis.
Fjallað er um málið meðal annars á fréttavef brezka dagblaðsins Independent. Fram kemur að Macron hafi fagnað ummælum Burnhams en um leið varað við því að ekki yrði á boðstólum að uppfylla inngönguskilyrðin einungis að hluta til. Ekki væri þannig hægt að velja á milli í þeim efnum og „ákveða að taka aðeins það sem hentar en hafna hinu.“
Fram kemur í fréttinni að embættismenn Evrópusambandsins sem komu að útgöngu Bretlands úr sambandið fyrir hönd þess hefðu áður varað við því að Bretar myndu ekki fá neina sérmeðferð fram yfir aðra ef þeir tækju ákvörðun um að ganga aftur þar inn. Bretar myndu þannig meðal annars þurfa að taka upp evruna og enn fremur ganga í Schengen.
Fyrr á árinu sýndu niðurstöður skoðanakönnunar fyrirtækisins YouGov að meirihluti Breta vildi aftur í Evrópusambandið. Hins vegar breyttist það þegar spurt var í sömu könnun hvort vilji væri til inngöngu í sambandið ef Bretland myndi ekki njóta sömu kjara og landið gerði þegar það var þar innanborðs. Þá reyndust þvert á móti fleiri andvígir.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Emmanuel Macron, forseti Frakklands. Eigandi: © European Union, 1998-2026)
