Daði „heldur“ að krónan sé vandamálið

Við þekkjum fullyrðingar Evrópusambandssinna um að krónan sé ástæðan fyrir verðbólgu á Íslandi í gegnum tíðina og háum vöxtum og þess vegna þurfi að ganga í Evrópusambandið til þess að taka upp evru í stað hennar. Fyrir þessu hafa þó aldrei verið færð haldbær rök og þvert á móti verið sýnt fram á það að slíkar fullyrðingar standist enga skoðun.

Hins vegar kemur fyrir annað slagið að einarðir Evrópusambandssinnar viðurkenna að krónan sé í raun ekki vandamálið eða að í bezta falli sé allavega ekkert hægt að fullyrða í þeim efnum. Til dæmis Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor í samtali við DV í desember síðastliðnum þar sem hann sagði að háir vextir væru ekkert endilega krónunni að kenna.

Kostir og gallar fylgdu þannig bæði stórum sem og litlum sveigjanlegum gjaldmiðlum. „Og ástæða þess að vextir eru eitthvað hærri hér og hafa sögulega verið heldur en í nágrannalöndunum eða Bandaríkjunum, er kannski ekki það endilega að við erum með sjálfstæðan gjaldmiðil, heldur það að við höfum ekki haldið neitt sérstaklega vel á spilunum.“

Fjármálaráðherrann, Daði Már Kristófersson sem einnig var áður hagfræðiprófessor, sagði að sama skapi í samtali við Vísi á miðvikudaginn um verðbólgu á Íslandi í gegnum tíðina: „að hluta til held ég að þetta skýrist af myntinni okkar.“ Að hluta til og að hann héldi það. Með öðrum orðum treysti hann sér ekki til þess að fullyrða neitt í þeim efnum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)