Traust samband þrátt fyrir ríkisstjórnina

Helztu rök Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í aðdraganda þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið í lok sumars fyrir því að Ísland þyrfti að ganga í sambandið voru þau að ekki væri lengur hægt að treysta Bandaríkjunum. Bæði hún og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sögðu erlendum fjömiðlum að atkvæðagreiðslunni hefði verið flýtt vegna framgöngu bandarískra stjórnvalda í garð Grænlands sem skapaði mikla hættu fyrir Ísland að þeirra sögn.

Hins vegar greindi Þorgerður frá því fyrir helgina að hún hefði boðið Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í heimsókn til Íslands, hann hafi þegið boðið og komi til landsins í næstu viku. Utanríkisráðherra sömu stjórnvalda og Þorgerður varaði óspart við í aðdraganda þjóðaratkvæðisins. Sömu stjórnvalda og danskir og grænlenzkir ráðamenn gerðu nýverið víðtækara samkomulag við um varnir Grænlands en áður. Þvílíkur og annar eins hræðsluáróður.

„Það er mikið ánægjuefni að Rubio hafi þegið heimboðið sem ég ítrekaði við hann í New York á dögunum. Samstarf Íslands og Bandaríkjanna stendur á traustum grunni og heimsókn hans hingað er til marks um það,“ var haft eftir Þorgerði á vefsíðu utanríkisráðuneytisins á fimmtudaginn. „Það hefur verið sérstakt áherslumál mitt í embætti utanríkisráðherra að styrkja tengsl Íslands við okkar nánustu vina- og bandalagsríki beggja vegna Atlantshafsins.“ Og síðan áfram:

„Við eigum í virku samtali við Bandaríkin um sameiginleg hagsmunamál þar sem samstarf í varnarmálum, öryggi á norðurslóðum og viðskipti milli ríkjanna vega hvað þyngst. Það er tilhlökkunarefni að taka á móti utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem mun styrkja okkar góða samband enn frekar.“ Þetta stórhættulega ríki sem Þorgerður vildi meina fyrir aðeins skömmu, til þess að reyna að koma okkur í Evrópusambandið, að ógnaði öryggi Íslands?

Veruleikinn er hins vegar sá að tengsl Íslands og Bandaríkjanna eru vissulega og hafa lengi verið traust í grunninn. Núverandi ríkisstjórn landsins hefur hins vegar vanrækt mjög sambandið við Bandaríkjamenn þvert á orð Þorgerðar fyrir utan það að reyna beinlínis að gera þau tortryggileg í pólitískum tilgangi. Bandarískum ráðamönnum er vel kunnugt um það. Hins vegar vilja þeir gjarnan efla tengslin við Ísland þrátt fyrir núverandi ríkisstjórn landsins. Ekki vegna hennar.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Eigandi: Stjórnarráðið)