Fimm lögfræðingar sem starfa hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) skipa lögfræðingateymi stofnunarinnar gegn Íslandi í málsókn hennar fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35 við EES-samninginn. Þar af tveir íslenzkir. Þær Sigrún Ingibjörg Gísladóttir og Hildur Hjörvar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu dómstólsins um málið.
Fróðlegt er að skoða bakgrunn þeirra Sigrúnar og Hildar. Sigrún er þannig til að mynda fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar í suðvesturkjördæmi, kjördæmi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns flokksins. Hildur Hjörvar er fyrrverandi formaður Hallveigar, ungs jafnaðarfólks í Reykjavík, og var á sínum tíma frambjóðandi fyrir Samfylkinguna. Þá má geta þess að hún er dóttir Helga Hjörvars, fyrrverandi þingflokksformanns flokksins.
Tekin var sem kunnugt er ákvörðun um málsóknina á miðvikudagsmorguninn af þremur stjórnarmönnum ESA en einn þeirra er Árni Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Hefur aðkoma hans að málinu vakið talsverða athygli vegna bakgrunns hans í hérlendum stjórnmálum og verið tilefni talsverðrar fjölmiðlaumfjöllunar. Hins vegar er hann sem fyrr segir ekki sá eini sem kemur að málsókninni og hefur tengsl við núverandi stjórnarflokka.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Höfuðstöðvar EFTA í Brussel. Eigandi: EFTA)
