Varnaðarorð vegna stjórnarskrárinnar hunzuð

Haft var eftir Árna Páli Árnasyni, varaforseta og stjórnarmanni Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), í Morgunblaðinu í síðustu viku að fyrir lægju tvö álit hæstaréttardómara um að ekki væru stjórnskipulegir meinbugir á því að innleiða bókun 35 við EES-samninginn sem forgangsreglu, þar sem innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum samninginn gengi framar innlendri lagasetningu. Í svari við fyrirspurn frá mér sagðist Árni hafa verið að vísa til greinar Benedikts Bogasonar, forseta Hæstaréttar, og Þorgeirs Örlygssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara, í afmælisriti EFTA-dómstólsins sem kom út árið 2024.

„Þetta hefur aðeins skolast til í meðförum blaðamannsins, en ég nefndi að fyrir liggi álit tveggja hæstaréttardómara í þessa veru, fyrrverandi og núverandi. Þar var ég að visa til greinar Þorgeirs Örlygssonar og Benedikts Bogasonar í afmælisriti EFTA-dómstólsins,“ sagði í svari Árna. Hvergi kemur hins vegar fram í greininni það álit að innleiðing bókunar 35 sem forgangsreglu standist stjórnarskrána. Benti hann einnig á greinargerð Þorgeirs um málið fyrir stjórnvöld þar sem því er vissulega haldið fram en á sama tíma hafa aðrir lögspekingar komizt að þveröfugri niðurstöðu. Ekki sízt fyrrverandi hæstaréttardómarar.

Forgangur andstæður stjórnarskránni

Til að mynda má þar nefna Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseta Hæstaréttar, í grein í afmælisriti EFTA-dómstólsins 2014: „Staðreyndin er hins vegar sú að ekki var mögulegt að ganga lengra innan þess ramma sem stjórnarskrá Íslands setur. Stjórnarskráin gerir hvorki ráð fyrir því að takmarka megi fullveldi lýðveldisins með framsali löggjafarvalds til alþjóðastofnana né að landslög, sem byggjast á alþjóðlegum skuldbindingum eins og EES-samningnum, geti eingöngu af þeim sökum öðlast ríkari stöðu en önnur almenn löggjöf.“ Alþingi væri því óheimilt að veita slíkan forgang samkvæmt stjórnarskránni.

Hið sama á við um Davíð Þór Björgvinsson, fyrrverandi dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Í álitsgerð 30. október 2004, sem hann vann fyrir utanríkisráðuneytið, kemur þannig að sama skapi fram að ástæða þess að bókun 35 hefði verið innleidd sem lögskýringarregla en ekki forgangsregla hefði verið sú að hrein forgangsregla, eins og felst í frumvarpinu um bókunina, hefði ekki verið talin samrýmast stjórnarskránni: „Á Íslandi var sú leið ekki talin fær að setja í lög hreina forgangsreglu þar sem hendur löggjafans yrði bundnar við lagasetningu í framtíðinni, en slíkt fengi tæpast samrýmst stjórnarskránni.“

Regluverk frá ESB yfir að „ofurlögum“

Fram kemur í grein eftir Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, í Morgunblaðinu 11. september að frumvarpið um bókun 35 fæli í sér takmörkun á löggjafarvaldi Alþingis í bága við stjórnarskrána. „Ekki verður annað séð en að sú skipan sem felst í þessu frumvarpi standist ekki nema stjórnarskránni sé fyrst breytt og í hana sett ákvæði sem heimilar þetta. Alþingismönnum er skylt að haga störfum sínum að lagasetningu samkvæmt þeim heimildum sem stjórnarskráin veitir. Þess vegna hefur Alþingi ekki stjórnskipulega heimild til að lögfesta frumvarp með ofangreindu efni.“

Varað var eins við því í grein Stefáns Más Stefánssonar, lagaprófessors emeritus, í Morgunblaðinu 15. október 2025 að álitamál væri hvort frumvarpið stæðist fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar. Kæmi til þess að frumvarpið yrði samþykkt þýddi það að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu yrði að eins konar „ofurlögum“ hér á landi í tómarúmi á milli annarra almennra laga og stjórnarskrárinnar. „Ef veita á lögum sem stafa frá erlendu réttarkerfi forgang í umtalsverðum mæli með lagareglum kynni slíkt að fela í sér framsal löggjafarvalds sem væri andstætt fyrirmælum 2. gr. stjórnarskrárinnar.“

Fetar þingheimur í fótspor Árna Páls?

Við þetta má síðan bæta að fram kom í minnisblaði utanríkisráðuneytisins til utanríkismálanefndar Alþingis árið 2020, þegar enn var haldið uppi vörnum í málinu í tíð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í ráðuneytinu, að lagabreyting, líkt og frumvarpið um bókun 35 kveður á um, væri tæplega möguleg án veigamikillar stjórnarskrárbreytingar. Þeim sjónarmiðum var að sama skapi komi á framfæri við ESA. Hins vegar kaus stofnunin að virða þau varnaðarorð að vettugi og halda einungis fram sömu sjónarmiðum og áður í svari til þess líkt og fjallað er um í málsókn hennar.

Mögulega er það kaldhæðni örlaganna að Árni skuli vera einn helzti talsmaður ESA í máli stofnunarinnar gegn Íslandi þar sem álitamál varðandi stjórnarskrána hafa verið höfð að engu í ljósi þess að hann er hvað þekktastur hér á landi fyrir að hafa sem ráðherra beitt sér fyrir setningu svonefndra Árna Páls-laga sem dæmd voru ólögmæt af Hæstarétti einmitt á þeim forsendum að þau færu gegn stjórnarskránni. Þau lög sneru að uppgjöri gengistryggðra lána en ekki fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar líkt og frumvarpið um bókun 35. Hvort þingheimur kýs að feta í þau fótspor Árna á eftir að koma í ljós.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 6. október 2026)

(Ljósmynd: Árni Páll Árnason, varaforseti og stjórnarmaður ESA. Eigandi: ESA)