Hafa ekki burði til að efla varnargetu ESB

Hergagnaframleiðendur innan Evrópusambandsins hafa ekki burði til þess að framleiða þau hergögn sem þörf er á til þess að styðja við Úkraínu og endurnýja vopnabúr ríkja sambandsins. Þetta sagði Riho Terras, þingmaður á þingi Evrópusambandsins og fyrrverandi hershöfðingi í eistneska hernum, á varnarmálaráðstefnu sem fram fór í Brussel 30. september.

Terras, sem situr á þingi Evrópusambandsins fyrir stærsta þingflokkinn á þinginu, European People’s Party, kallaði eftir því að ríki sambandsins keyptu beztu og ódýrustu hergögnin og búnaðinn óháð því hvar þau væru framleidd og hafnaði þannig hugmyndum þeirra sem lagt hafa áherzlu á mikilvægi þess að keyptur búnaður væri framleiddur innan þess.

„Evrópskur hergagnaiðnaður er ekki enn í stakk búinn til þess að framleiða í því magni, með þeim hraða og í þeim gæðum sem þarf til að herir okkar geti fljótt aukið getu sína,“ sagði Terras í umræðum um aukin útgjöld til varnarmála á ráðstefnunni sem skipulögð var af fréttavefnum Euronews. Taka myndi þannig ennþá lengri tíma en ella að byggja upp þá getu.

Forstjóri þýzka vopnaframleiðandans Rheinmetall, Armin Papperger, sagði í samtali við brezka ríkisútvarpið BBC í febrúar 2024 að það myndi taka ríki Evrópusambandsins áratug að verða í stakk búin til þess að sjá um sínar eigin varnir vegna vanrækslu fyrri ára. Staðan hefur batnað síðan en enn eru mörg ár í að þau geti varið sig sjálf. Hvað þá aðra.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Riho Terras, þingmaður á þingi Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 1998-2026)