Klerkastjórnin í Íran hefur fagnað ummælum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem hún lét falla í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 26. september þar sem hún gagnrýndi stjórnvöld í Ísrael harðlega. Hafa verið hengdir upp borðar víða í Teheran, höfuðborg landsins, þar sem orðum Þorgerðar er hampað.
Fyrir tæpum mánuði síðan flutti Þorgerður ræðu á Alþingi þar sem hún gerði fögnuð stjórnmálamanna eins og Nigels Farage í Bretlandi og Marine Le Pen í Frakklandi vegna niðurstöðu þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið að umtalsefni og sagði „ákveðna stjórnarandstöðuþingmenn“ vera skoðanasystkini þeirra af þeim sökum.
Með sömu rökum, ef rök skyldi kalla, og Þorgerður kaus að beita í kjölfar þjóðaratkvæðisins, þar sem hún greip til þess ráðs í pólitískum tilgangi að reyna að spyrða áðurnefnda erlenda stjórnmálamenn og fleiri slíka við stjórnarandstöðuþingmenn hér á landi, er væntanlega klerkastjórnin í Íran að sama skapi skoðanabræður Þorgerðar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: Sameinuðu þjóðirnar)
