Vorið 2011 ritaði Margrét Einarsdóttir, þá forstöðumaður Evrópuréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík en nú lagaprófessor við sama skóla, grein í Fréttablaðið þar sem hún lýsti þeirri afstöðu sinni að líklegast myndi Ísland tapa samningsbrotamáli fyrir EFTA-dómstólnum sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hafði hótað okkur vegna Icesave-málsins. Færði hún ýmis lagaleg rök fyrir þeirri afstöðu sinni. Hins vegar fór málið sem kunnugt er þvert á móti þannig að Ísland var sýknað.
Meðal annars tók Margrét undir það með ESA að Ísland hefði gerzt sekt um mismunun á grundvelli þjóðernis í kjölfar bankahrunsins haustið 2008 og brotið gegn tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar sem innleidd hafði verið hér á landi í gegnum EES-samninginn. Reifaði hún í löngu máli hvers vegna hún hefði komizt að þeirri niðurstöðu sem aftur var meira eða minna reist á málatilbúnaði ESA gegn Íslandi. Því hafnaði EFTA-dómstóllinn hins vegar.
Margrét mætti í hlaðvarp Félags atvinnurekenda í gær þar sem hún ræddi við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra félagsins, um fyrirhugað samningabrotamál ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35 við EES-samninginn. Lýsti hún þar að sama skapi þeirri skoðun sinni að Ísland myndi tapa málinu og vísaði eins og í Icesave-málinu í málatilbúnað ESA. Ólafur tók undir með Margréti enda sömuleiðis andvígur því að Icesave-málið færi til EFTA-dómstólsins.
Veruleikinn er sá að ESA mun ekki sætta sig við annað en að orðið verði að fullu við kröfum stofnunarinnar um að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn gangi framar innlendri lagasetningu. Líkt og Árni Páll Árnason, varaforseti ESA, hefur áréttað. Við höfum þannig val um að gefast fyrir fram upp fyrir kröfum stofnunarinnar, eins og til dæmis Margrét og Ólafur vildu gera í Icesave-málinu, eða láta reyna á málið fyrir EFTA-dómstólnum.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Margrét Einarsdóttir lagaprófessor og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. Eigandi: Skjáskot)
