Full ástæða er til þess að fagna því að ríkisstjórnin sé loksins farin að sýna einhverja viðleitni í þá veru að styrkja tengslin við Bandaríkin í stað þess að vanrækja þau líkt og hingað til og hreinlega grafa undan þeim með því að halda því fram að okkur stafaði hætta af Bandaríkjamönnum í þeim tilgangi að reyna að koma Íslandi inn í Evrópusambandið.
Hafi einhverjir efast um mikilvægi Íslands fyrir varnir Bandaríkjanna og skuldbindingar bandarískra stjórnvalda í þeim efnum ættu þær efasemdir að hafa orðið að engu í kjölfar heimsóknar Marcos Rubio, utanríkisráðherra landsins, á dögunum. Ráðherrann ræddi þar meðal annars um mikilvægi landfræðilegrar staðsetningar Íslands og vilja bandarískra stjórnvalda til þess að efla varnarsamstarf við landið. Þá lagði hann áherzlu á að efla tvíhliða viðskiptatengsl landanna.
Meðal þess sem niðurstaða þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið hefur skilað er að ríkisstjórnin, og þá einkum og sér í lagi Viðreisn, sjá sér ekki lengur pólitískan hag í því að draga upp þá röngu mynd að Bandaríkin séu hættuleg Íslandi. Hefði niðurstaðan orðið önnur hefði hún hins vegar áfram séð sér hag í því að grafa undan þeim tengslum.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Eigandi: Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna)
