„Við eigum að verja rétt okkar og hagsmuni“

„Við eigum að standa við okkar skyldur en jafnframt standa fast á okkar réttindum og verja íslenzka hagsmunni,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í ræðu sinni í umræðum um frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um bókun 35 við EES-samninginn á Alþingi í gær. Málið væri enn eina ferðina til umræðu en hins vegar væri staðan önnur en þegar það hefði verið rætt síðast í þingsal enda væri það nú komið til EFTA-dómstólsins.

„ESA hefur höfðað samningsbrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum. Sá lagalegi ágreiningur sem staðið hefur árum saman er því kominn fyrir dómstól. Það hlýtur að hafa þýðingu fyrir það hvernig Alþingi nálgast málið nú,“ sagði Guðrún og bætti við: „Hvers vegna á Alþingi að hraða þessu máli núna?“ Ríkisstjórnin bæri ábyrgð á málinu enda með dagskrárvaldið á Alþingi. Þá væri forgangsröðun hennar einkennileg þegar verðbólgan væri enn of mikil og vextir of háir.

Fyrir vikið gengi ekki að láta eins og skyndilega hefði skapast neyðarástand á Alþingi vegna málsins eftir að ESA hefði höfðað mál gegn Íslandi. Mikil einföldun væri að halda því fram að málið væri úr sögunni með samþykkt frumvarpsins. Málið væri nú komið til EFTA-dómstólsins og þá vaknaði sú spurning hversu skynsamlegt það væri að lögfesta nú almenna forgangsreglu eins og kveðið væri á um í frumvarpinu áður en lagt væri mat á áhrif þeirrar nýju stöðu sem upp væri komin.

„Við eigum ekki að flýta okkur bara af því að ríkistjórnin gerði þetta ekki fyrr. Við eigum að vanda okkur,“ sagði Guðrún enn fremur. Sjálfstæðisflokkurinn styddi EES-samninginn sem fyrr en alþjóðlegt samstarf útilokaði hins vegar ekki lögfræðilegan ágreining um inntak samninga. EFTA-dómstóllinn væri einfaldlega hluti þeirrar stofnanaskipan sem EES-samstarfið væri reist á. „Að bera ágreining undir þann dómstól er ekki að grafa undan EES-samningum. Það er hluti af honum.“

Hins vegar kynni úrskurður EFTA-dómstólsins að skipta máli varðandi forsendur og umfang skuldbindinga sem og möguleg viðbrögð stjórnvalda við honum. „Við fyrri meðferð hafa líka komið fram ólík lögfræðileg sjónamið um útfærslu forgangs- reglunnar og meðal annars verið bent á álitaefni um réttaröryggi, fullveldi og stöðu Alþingis þegar almenn og opinn forgangs- regla er sett. Þegar Alþingi setur almenna reglu um innbyrði stöðu íslenzkra laga á að vanda til verka.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Sjálfstæðisflokkurinn)