Vildi aðstoð ESB gegn íslenzkum stjórnvöldum

„Ég vil biðja ykk­ur um að þrýsta á framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að líta áfram á Ísland sem umsóknarríki að sambandinu.“ Þetta var haft eftir Árna Páli Árna­syni, þáverandi formanni Samfylkingarinnar og núverandi varaforseta Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), í lok apríl 2015 á Twitter-síðu þingflokks jafnaðarmanna á þingi sambandsins.

Tilefnið var heimsókn Árna Páls til þingflokksins í Brussel en hann hafði skömmu áður lýst því yfir í hérlendum fjölmiðlum að samböndum Samfylkingarinnar innan Evrópusambandsins yrði beitt til þess að koma í veg fyrir áform þáverandi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um að draga til baka umsókn Íslands um inngöngu í sambandið.

Formlegur tilgangur heimsóknar Árna Páls var undirritun samstarfssamnings á milli Samfylkingarinnar og þingflokksins. „Um leið og við sigrum þingkosningarnar hefjum við inngönguferlið […] Við munum skipuleggja þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu í Evrópusambandið um leið og við komumst til valda,“ var enn fremur haft eftir honum á Twitter-síðunni.

Skömmu áður hafði þáverandi ríkisstjórn sent Evrópusambandinu bréf þar sem fram kom að hún liti svo á að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki að sambandinu. Stjórnarandstaðan hefur kallað eftir því í kjölfar þjóðaratkvæðisins í lok ágúst að tryggt verði að umsóknin hafi verið dregin til baka. Því hafa forystumenn Samfylkingarinnar og Viðreisnar hafnað.

Frá því var greint í síðustu viku að ESA hefði ákveðið að höfða samningsbrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35 við EES-samninginn en stofnunin hefur krafizt þess að innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum samninginn fengi forgang á almenna innlenda löggjöf. Var Árni Páll einn þeirra sem tóku þá ákvörðun.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Árni Páll Árnason, varaforseti og stjórnarmaður ESA. Eigandi: Skjáskot af Rúv.is)