Mér var boðið að halda erindi á vel sóttum fundi Sjálfstæðisfélags Kópavogs um liðna helgi ásamt Jóni Steinari Gunnlaugssyni, fyrrverandi hæstaréttardómara, og Sigríði Andersen, þingmanni Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra. Til umræðu var frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um bókun 35 við EES-samninginn.
Farið var vel yfir málið í ræðunum. Þau Jón Steinar og Sigríður gerðu ekki sízt lagalegum hluta málsins góð skil en sjálfur lagði ég fyrir vikið einkum áherzlu á að ræða það í víðara samhengi. Bókun 35 væri þannig aðeins hluti af stærra máli sem varðaði þróun EES-samningsins þar sem sífellt væri krafizt framsals meira valds í gegnum íþyngjandi regluverk.
Meðal þess sem ég minntist á í ræðu minni var sá skyndilegi viðsnúningur sem átti sér stað í málinu þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tók við sem utanríkisráðherra af Guðlaugi Þór Þórðarsyni þar sem horfið var frá vörnum í málinu og tekið undir kröfur Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um forgang innleidds regluverks frá Evrópusambandinu.
Ég benti á það að aldrei hefðu fengizt haldbærar skýringar á viðsnúningi Þórdísar en hins vegar yrði eðli málsins samkvæmt að skoða hann í ljósi málflutnings hennar undanfarin misseri þar sem hún hefði ítrekað lýst jákvæðum viðhorfum til inngöngu í Evrópusambandið. Þá hefði hún sagt að sem formaður Sjálfstæðisflokksins hefði hún ekki getað gert það.
Fyrir vikið væri erfitt að draga aðra ályktun en þá að Þórdís hefði ekki verið heiðarleg við okkur sjálfstæðismenn um afstöðu sína til Evrópumálanna. Við það greip einn fundarmanna orðið og fann að því að Þórdís væri gagnrýnd. Engin efnisleg rök fylgdu þó hvers vegna ekki mætti gagnrýna hana. Almennt var mér hins vegar þakkað fyrir eftir fundinn.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Eigandi: European People’s Party – Creative Commons Attribution 2.0 Generic)
