Mörgum kom á óvart þegar tilkynnt var nær fyrirvaralaust á dögunum að Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, léti af störfum í lok mánaðarins eftir að hafa gegnt starfinu í 17 ár. Fjölmiðlar greindu frá því í kjölfarið að Hörður hefði á starfsmannafundi sagt ástæðuna ágreining við stjórn fyrirtækisins. Ekki hefur verið upplýst í hverju ágreiningurinn fólst en Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, hefur viljað gera sem minnst úr málinu.
Fyrr á þessu ári var Hörður inntur eftir því í pallborðsumræðum á ársfundi Landsvirkjunar hvers vegna gengi illa að koma virkjunarverkefnum áfram hér á landi. Sagði hann ástæðuna flókið regluverk. Einkum frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn. „Við sjáum að þetta er ekki bara á Íslandi heldur líka í Evrópu.“ Sagði hann að sambandið væri komið í ógöngur af þeim sökum. Vísaði hann meðal annars í því sambandi til vatnatilskipunar Evrópusambandsins.
„Stofnanirnar skilja ekki lögin, stundum eru bara ágallar í lögunum eins og við innleiðingu vatnatilskipunarinnar sem að bara enginn skildi hvað var verið að gera eða hvaða afleiðingar voru af þessum flóknu lögum. Svo eru rammaáætlanir séríslenzk fyrirbrigði. Ég held að flestir sem kynni sér vatnatilskipunina spyrji: var þetta mikilvægt fyrir Ísland? Er vatnið vandamál á Íslandi? Hefðum við einhvern tímann gert þetta ótilneydd? Og ég held að svarið sé nei.“
Vorið 2025 skipti Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra allri stjórn Landsvirkjunar út og skipaði nýja í hennar stað. Í kjölfar niðurstöðu þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið hefur ríkisstjórnin boðað aukna áherzlu á EES-samninginn. Hvort sem gagnrýni Harðar á regluverk í gegnum samninginn hafi átt þátt í því að hann kaus að láta af störfum eða ekki má gera fastlega ráð fyrir því að sú afstaða hans hafi allavega ekki fallið í góðan jarðveg hjá stjórnvöldum.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Eigandi: Landsvirkjun)
