Hvað með fjármögnun ESB á hernaði Rússa?

„Þetta er einfaldlega enn eitt dæmið um það að Evrópulönd standa ein með Úkraínu, að það er ekki hægt að treysta á Bandaríkin þegar kemur að stríðinu í Úkraínu,“ sagði Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur í samtali við Vísi í fyrradag. Tilefnið var ákvörðun Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, að heimila Rússlandi að flytja út flytja út tæplega tvær milljónir tonna af díselolíu á alþjóðamarkaði fyrir áramót í skrefum til þess að lækka heimsmarkaðsverð.

„Þetta er ákveðið áfall fyrir Evrópu. Þarna er bara beinlínis verið að grafa undan refsiaðgerðum Evrópu og Bandaríkin voru hluti af því. En núna fara þau svona á móti, móti hagsmunum Evrópu og Úkraínu,“ sagði Vilborg Ása enn fremur. Full ástæða er til þess að taka undir gagnrýni á ákvörnun Trumps en hvað þá með gríðarleg kaup ríkja Evrópusambandsins á rússneskri olíu og gasi í gegnum tíðina sem enn hefur ekki verið endanlega hætt hátt í fimm árum eftir innrásina í Úkraínu?

Til dæmis fluttu ríki Evrópusambandsins einungis á síðasta ári inn 9,7 milljónir tonna af rússneskri olíu. Um fimmfalt það magn sem til stendur að heimila Rússlandi að flytja út á alþjóðamarkaði fram að áramótum. Dregið hefur verulega úr kaupum ríkja sambandsins á rússnesku jarðefnaeldsneyti frá innrásinni enda voru þau fyrir hana langstærsti kaupandinn. Enn er verulegt magn af þarlendu gasi flutt til Evrópusambandsins og stendur ekki til að hætta því fyrr en mitt næsta ári.

„Fyrstu sex mánuði þessa árs festu ríki Evrópusambandsins kaup á 9,89 milljónum tonna af fljótandi jarðgasi frá rússneska fyrirtækinu Yamal LNG. Þetta er 18% aukning miðað við sama tímabil í fyrra,“ sagði í ritstjórnarskrifum bandaríska dagblaðsins Washington Post 14. júlí síðastliðinn. Ríki Evrópusambandsins hefðu að undanförnu stóraukið kaup sín á fljótandi gasi frá Rússlandi en tilgangurinn hefur verið að birgja sig upp áður en innflutningurinn yrði endanlega bannaður.

„Frá því að Rússland réðist inn í Úkraínu hefur Evrópusambandið greitt meira en 220 milljarða evra fyrir rússneskt jarðefnaeldsneyti. Það er nokkurn veginn það sama og hernaðurinn í Úkraínu hefur kostað Rússland. Þessu verður að linna,“ segir Inese Vaidere, þingmaður lettneska stjórnmálaflokksins Jaunā Vienotība, á þingi Evrópusambandsins í myndbandi sem birt var á Facebook-síðu evrópska þingflokksins European People’s Party í byrjun nóvembers síðastliðins.

Maria Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar, vakti athygli á því um sama leyti að Evrópusambandið hefði greitt meira fyrir rússneskt jarðefnaeldsneyti frá innrásinni en í fjárstuðning til Úkraínu. Þannig hefðu 187 milljarðar evra runnið til Úkraínu. Fram kom í frétt Euronews um málið að væru önnur viðskipti við Rússland talin með hefðu 311 milljarðar evra skilað sér þangað. Það næði ekki því sem farið hefði til Úkraínu þótt ógreidd loforð væru sömuleiðis talin með.

Forystumenn Evrópusambandsins hafa ítrekað gengizt við því að ríki þess hafi með þessu fjármagnað hernaðaruppbyggingu Rússlands og síðan hernað þess í Úkraínu. Til að mynda þáverandi utanríkisráðherra sambandsins Josep Borrell í ræðum á þingi þess. Fullt tilefni er til þess að gagnrýna ákvörðun Trumps sem fyrr segir en það er hins vegar dropi í hafið miðað við framgöngu Evrópusambandsins. Mögulega væru engin átök í Úkraínu hefði ekki komið til þeirrar fjármögnunar.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur. Eigandi: Skjáskot af Rúv.is)