„Ég frábið mér málflutning um að það að við nýtum okkur verkfæri okkar í EES-samningnum eða tökumst á um túlkun hans og framkvæmd sé einhvers konar aðför að samningnum,“ sagði Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum á Alþingi á dögunum um frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35 við EES-samninginn. Innleiðing bókunarinnar sem lögskýringarreglu í stað forgangsreglu hefði gengið ágætlega áratugum saman og þó upp hefðu komið einhverjir hnökrar og áskoranir í þeim efnum væri það einfaldlega verkefni stjórnvalda á hverjum tíma að takast á við það.
„Ég ætla líka að hafna því algjörlega að sitja undir umvöndunum Evrópusambandssinna um skilgreiningu á því hvernig við stöndum vörð um EES-samninginn,“ sagði Diljá enn fremur og vísaði til þess að í kosningabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðið um Evrópusambandið hefðu þeir keppzt við að tala samninginn niður. „Eigum við sem höfum barist fyrir bættri framkvæmd og fyrir hagsmunagæzlu okkar í EES, bæði á vettvangi framkvæmdarvaldsins og ekki síður hér á vettvangi þingsins, að sitja undir umvöndunum þessa fólks?“ spurði hún og beindi máli sínu til ráðherra og þingmanna stjórnarinnar.
„Ég var búin að nefna áskoranir í tengslum við EES-samninginn. Þetta eru jú ekki allt saman regnbogar og rósir í þessu samstarfi okkar,“ sagði Diljá áfram. Óskandi væri til að mynda að ríkisstjórnin hefði meiri áhuga á því að Evrópusambandið stæði við EES-samninginn og bryti ekki á Íslandi með ólögmætum hætti og vísaði þar til refsitollanna sem sambandið setti á íslenzkt kísiljárn undir lok síðasta árs. „Það verður heldur ekki hjá því komist að ræða þá stöðu sem upp er komin og var ekki áður, þetta er ný staða, sem er sú að mál hefur verið höfðað sem tengist þessu máli fyrir EFTA-dómstólnum.“
„Mín afstaða er þessi og hún hefur ekki breyst: Ég er stuðningsmaður EES-samstarfsins og ég hef unnið ötullega að hagsmunum okkar þar og vernd samningsins í mínum störfum. Það er mikilvægt fyrir Ísland að EES-samningurinn virki en það er ekki síður mikilvægt að það sé almenn og breið samstaða um samninginn hér á landi. Við getum ekki lokað augunum fyrir ágreiningi sem hefur risið vegna þessa máls, ekki bara í almennri umræðu heldur ekki síður meðal virtra fræðimanna sem greinir á um þá leið sem við eigum að fara í þessu máli,“ og vísaði til gagnrýni lögspekinga á frumvarpið.
„Mín skoðun er sú að við eigum að skoða málið vel og vandlega og í rólegheitunum, ekki sízt í ljósi þeirrar nýju stöðu sem upp er komin varðandi málshöfðun á hendur Íslandi,“ sagði Diljá enn fremur og sagði að engin þörf væri á hamagangi vegna málsins. „Á meðan hvet ég þingheim og almenning til að setja í forgang alvarlega stöðu í efnahagsmálum landsins undir forystu þessarar ríkisstjórnar. Ekki falla fyrir reyksprengjum ríkisstjórnarinnar. Efnahagsmálin eru algjört forgangsmál. Við getum ekki sætt okkur við aðgerðaleysi eða rangar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar í þeim málum í tvö ár í viðbót.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)
