Fullyrt er í grein sem Egill Almar Ágústsson hagfræðingur ritaði á vef Viðskiptablaðsins fyrr í vikunni að landsframleiðsla á mann hér á landi hefði verið minni en innan Evrópusambandsins á liðnum árum. Tengdi Egill málið við þjóðaratkvæðið um sambandið í lok sumars en sjálfur hefur hann verið ötull stuðningsmaður inngöngu Íslands í það árum saman.
Fullyrðing Egils stenzt hins vegar enga skoðun. Hagstofan hefur til að mynda mælt landsframleiðslu á mann á Íslandi um árabil og borið hana saman stöðuna innan Evrópusambandsins og ríkja þess í samstarfi við Eurostat, hagstofu sambandsins. Samkvæmt þeim mælingum hefur árleg landsframleiðsla á mann hér þvert á móti verið mun meiri en þar á bæ.
Til að mynda var landsframleiðsla á Íslandi á mann 28% meiri á síðasta ári en að meðaltali innan Evrópusambandsins, 31% meiri árið 2024 og 35% meiri 2023. Frá 2015 hefur landsframleiðslan á mann verið í kringum 30% meiri en meðaltalið innan sambandsins. Þá hefur landsframleiðslan á mann hér á landi verið meiri árum saman en í flestum ríkjum þess.
Markmið greinar Egils var ljóslega að draga upp þá mynd að þeir sem beittu sér gegn því að samþykkt yrði í þjóðaratkvæðinu að hefja umsóknarferli að Evrópusambandinu hefðu farið með rangt mál í aðdraganda þess. Veruleikinn er hins vegar sá að það á þvert á móti við um Egil sjálfan. Vonbrigði Evrópusambandssinna með þjóðaratkvæðið birtast á ýmsan hátt.
Athugasemd: Rétt er að geta þess að í grein sinni er Egill að tala um hagvöxt á mann, það er vöxt landsframleiðslu, en í pistlinum fjalla ég um landsframleiðslu á mann en hugtökin eru notuð sitt á hvað í grein hans. Eftir sem áður sýna tölur Hagstofunnar og Eurostat að landsframleiðsla á mann hefur verið meiri hér á landi en innan Evrópusambandsins.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Egill Almar Ágústsson hagfræðingur. Eigandi: Egill Almar Ágústsson)
