Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandríkjanna, var meðal annars inntur eftir því af fjölmiðlum í heimsókn hans til Íslands á dögunum hvort fríverzlunarsamingur á milli landanna kæmi til greina. Svaraði ráðherrann því til að hann teldi tíma slíkra samninga liðinn, allavega um fyrirsjáanlega framtíð. Tvíhliða viðskiptasamningur kæmi hins vegar vel til greina.
Hérlendir Evrópusambandssinnar, eins og Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, og fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason, hafa viljað meina að ummælin væru þvert á tal andstæðinga þess að hefja umsóknarferli að Evrópusambandinu í aðdraganda þjóðaratkvæðisins í sumar. Rökin voru þó aðallega orð forystumanna Sjálfstæðisflokksins eftir að það fór fram.
Helzti munurinn á fríverzlunarsamningum og tvíhliða viðskiptasamningum er einkum sá að ólíkt fyrrnefndu samningunum eru einungis tvö ríki aðilar að þeim síðarnefndu eins og heitið ber með sér. Fríverzlunarsamningar ná yfirleitt meira eða minna yfir öll viðskipti aðildarríkjanna en meiri sveigjanleiki felst hins vegar í tvíhliða viðskiptasamningum í þeim efnum.
Kostir og gallar eru þannig við hvora leið en það sem mestu skiptir er þó vitanlega að greiða fyrir milliríkjaviðskiptum en ekki í hvaða umbúðum það er gert. Það er ástæða fyrir því að Evrópusambandssinnar hafa gjarnan einungis minnzt á ummæli Rubios um fríverzlunarsamninga en sleppt því að geta þess að hann hafi um leið opnað á tvíhliða viðskiptasamning.
Hitt er svo annað mál að flest bendir til þess að fríverzlunarsamningur við Bandaríkin sé hvort eð er ekki mögulegur vegna aðildar Íslands að EES-samningnum og jafnvel ekki heldur tvíhliða viðskiptasamningur. Enda þyrfti þá allur bandarískur innflutningur til landsins sem fyrr að fylgja regluverki Evrópusambandsins sem tekið er upp í gegnum hann.
Við getum enda ekki breytt þeim reglum sem við tökum upp í gegnum EES-samninginn til þess að greiða fyrir viðskiptum við önnur ríki enda eru þær ekki okkar. Margt í þeim reglum er hugsað sem tæknilegar viðskiptahindranir til þess að vernda framleiðslu innan Evrópusambandsins gegn utanaðkomandi samkeppni. Meðal annars frá Bandaríkjunum.
Með öðrum orðum er EES-samningurinn, sem greiða átti fyrir viðskiptum við Evrópusambandið, í vaxandi mæli hindrun í vegi viðskipta við aðra markaði sem eru miklu fremur markaðir til framtíðar en nokkurn tímann sambandið. Ísland er utan tollamúra Evrópusambandsins en vegna aðildarinnar að samningnum hins vegar innan regluverksmúra sambandsins.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Eigandi: Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna)
