„Ég hringdi í þennan góða mann sem amma, amman sem ég er, ekki alveg orðin meðvituð að ég væri orðin ráðherra,“ sagði Inga Sæland, félagsmálaráðherra og formaður Flokks fólksins, í samtali við Vísi í dag vegna símtals sem hún átti við Ársæl Guðmundsson, skólameistara Borgarholtsskóla, á dögunum vegna týnds skópars barnabarns hennar.
Vísir hefur sagt að í símtalinu hafi Inga minnt á áhrif sín sem ráðherra og tengsl við lögregluna. Hefur Inga ítrekað svarað með skætingi fyrir málið þegar hún hefur verið spurð út í það en baðst síðan eftir ríkisstjórnarfund í gær afsökunar á símtalinu. Þó ekki á áðurnefndum ummælum sem hún hefur sagt orðum aukin. Talað hefur greinilega verið við hana.
Hvað Ársæl varðar hefur hann í fjölmiðlum borið við trúnaði vegna slíkra samtala og að hann gæti því ekki tjáð sig um málið. Varla þarf hins vegar að gæta trúnaðar vegna einhvers sem gerðist ekki. Hafi Inga ekki vísað í stöðu sína sem ráðherra og tengsl við lögregluna hefði Ársæll væntanlega getað sagt að sú hefði ekki verið raunin. Nema svo hafi verið.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
