Fyrst verði þá að breyta stjórnarskránni

Fróðleg grein birtist í Tímariti lögfræðinga árið 2007 eftir Ólaf Jóhannes Einarsson, þá lögfræðing hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) en nú skrifstofustjóra EFTA-dómstólsins, þar sem hann fjallaði um bókun 35 við EES-samninginn. Meðal annars með tilliti til stjórnarskrár lýðveldisins. Þó tekið sé fram á upphafssíðum greinarinnar að ekki sé ætlunin að fjalla um það álitaefni hvort í samningum hafi falizt framsal á ríkisvaldi í bága við stjórnarskrána er engu að síður fyrir að fara í henni áhugaverðum vangaveltum í þeim efnum þegar kemur að bókuninni sem slíkri og umræðum um hana.

Deilan um bókun 35 snýst um það hvort innleiða eigi hana sem forgangsreglu að kröfu ESA í stað lögskýringarreglu eins og gert var þegar Ísland gerðist aðili að EES-samningnum. Staðið var þannig að málum þar sem litið var svo á að forgangsregla rúmaðist ekki innan stjórnarskrárinnar. Fyrir vikið hefði þurft að breyta stjórnarskránni og setja inn heimild til þess að framselja vald með þeim hætti. Ljóst þótti að hefði verið litið svo á að ekki væri hægt að innleiða bókunina að óbreyttri stjórarskrá yrði líklega ekki nægur stuðningur á Alþingi við aðildina að EES-samningnum.

„Dylja óleysanlegan ágreining“

Meðal annars er áréttuð í grein Ólafs sú staðreynd að forsenda samþykktar Alþingis á EES-samningnum fyrir rúmum 30 árum síðan hafi verið sú að ekki fælist í aðildinni framsal á löggjafarvaldi. Evrópusambandið, eða forveri þess Evrópubandalagið, hafi viljað við samningsgerðina að tryggt yrði að ákvæði samningsins hefðu forgang gagnvart landsrétti EFTA-ríkjanna á sama hátt og innan þess. Hins vegar hafi EFTA-ríkin ekki viljað að í honum fælist framsal á ríkisvaldi. Bókun 35 hafi því orðið til sem málamiðlun á milli þessara tveggja sjónarmiða sem augljóst væri að færu ekki vel saman.

„Það gefur auga leið að þau eiga ekki vel saman og rök má jafnvel færa fyrir því að þau séu ósamrýmanleg,“ segir þannig í grein Ólafs og vísað í framhaldinu í þekkt ummæli Pierre Pescatore, fyrrverandi dómara við dómstól Evrópusambandsins: „Listin að semja um milliríkjasamninga er að hluta til sú list að dylja óleysanlegan ágreining á milli samningsríkjanna.“ Aðrir lögspekingar, eins og Stefán Már Stefánsson lagaprófessor hafa bent á það að ákveðin mótsögn væri í bókun 35 þar sem annars vegar segði í henni að löggjafarvald væri ekki framselt en hins vegar að tryggja yrði forgang EES-reglna.

Mætti þá allt eins yfirfæra á ESB

Fram kemur í greininni að ljóst hljóti „að teljast, að forgangsregla af þessu tagi gengur nærri þeim mörkum sem stjórnarskráin setur um framsal ríkisvalds en rannsóknir á því hver sé þýðing þeirrar takmörkunar á löggjafarvaldi, sem af reglunni leiðir, eru af skornum skammti.“ Fullyrðingar um að innleiðing bókunar 35 sem forgangsreglu fæli ekki í sér framsal löggjafarvalds og færi þar með ekki í bága við stjórnarskrána hafa verið reistar á því að Alþingi gæti alltaf sett lög sem færu gegn innleiddu regluverki í gegnum EES-samninginn. Ólafur segir þó vart hægt að leysa úr því álitaefni með þeim hætti.

„Mat á því hvort EES-samningurinn rúmist innan stjórnarskrárinnar getur ekki tekið mið af því að Alþingi sé alltaf frjálst að ganga gegn skuldbindingum samningsins óháð afleiðingum samkvæmt þjóðarétti, svo sem málsókn fyrir EFTA-dómstólnum,“ segir Ólafur þannig í greininni. Með slíkum rökum mætti þá allt eins halda því fram „að það framsal á löggjafarvaldi, sem fælist í aðild að Evrópusambandinu rúmaðist innan núgildandi stjórnarskrár, þar sem allt að einu hefði Alþingi formlega séð heimild til að setja lög sem brytu í bága við ákvæði Rs. [Rómar-sáttmálans] eða afleiddrar löggjafar.“

Verður farið gegn stjórnarskránni?

Telja yrði þess utan frekar langsótt að til þess kæmi að Alþingi setti lög „þar sem skýrlega segði að engu skipti hvort þau væru samrýmanleg EES-samningnum eða vitandi vits sé gengið í berhögg við ákvæði samningsins.“ Þá er því sjónarmiði lýst í grein Ólafs að markmiði bókunar 35 verði „þó ekki náð þannig að hafið sé yfir allan vafa nema stjórnarskráin geri beinlínis ráð fyrir einhvers konar millistigi milli hennar og almennra laga.“ Þá segir í greininni að hvað sem líði vangaveltum um bókunina verði að telja skynsamlegt að huga að því hvort rétt væri að bæta slíku ákvæði við stjórnarskrána.

Með öðrum orðum er í grein Ólafs talað á hliðstæðum nótum og ófáir aðrir lögspekingar, eins og Stefán Már, Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, og Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseta Hæstaréttar, hafa gert og lágu til grundvallar aðild Íslands að EES-samningnum í upphafi, að innleiðing bókunar 35 sem forgangsreglu rúmaðist ekki innan stjórnarskrárinnar og að fyrst yrði að breyta henni ef innleiða ætti bókunina með þeim hætti. Hvort þingheimur á eftir að fara gegn stjórnarskránni með samþykkt frumvarps utanríkisráðherra um hana kemur í ljós.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 20. október 2026)

(Ljósmynd: Ólafur Jóhannes Einarsson, skrifstofustjóri EFTA-dómstólsins. Eigandi: Skjáskot)