Verji hagsmuni Íslands á bezta mögulega hátt

„Hagsmuni Íslands ber að verja á besta mögulega hátt. Þar geta stjórnmálamenn ekki leyft sér heift og reiði gagnvart afstöðu stjórnarskrárgjafans, þjóðinni sjálfri, þegar þeir bera sjálfa skylduna til að verja hagsmuni landsins. Málið er einfaldlega komið á þann stað núna að fyrst ber að verjast og fá leiðsögnina frá EFTA-dómstólnum, óháð því hver niðurstaða dómstólsins verður,“ sagði Eiríkur Svavarsson, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Miðflokksins á Facebook fyrir helgi.

Minnti Eiríkur, sem var einn af forystumanna samtakanna Indefence í Icesave-málinu, á að sex vikur væru þar til Ísland þyrfti að skila vörn sinni og málatilbúnaði í máli Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) gegn Íslandi vegna bókunar 35 við EES-samninginn. „Í málinu reynir í fyrsta skiptið fyrir EFTA-dómstólnum á réttmæti á innleiðingu bókunar sem fylgt hefur samningnum frá upphafi, sem sagt dómsmál nærri 34 árum síðar. Bókun sem ESA hafði engar athugasemdir við í 25 ár.“

„Bókun sem áskilur sérstaklega í aðfararorðum sínum að hún gerir engar kröfur til aðildarríkja um breytingu á stjórnarskrá EES-ríkja til að innleiða bókunina og bókun þar sem ekkert aðildarríkja EES hefur kvartað yfir núverandi innleiðingu Íslands.“ Einungis væri um að ræða mál sem væri keyrt áfram af ESA. Merkileg tilviljun væri að málshöfðunin, í máli sem stofnunin hefði verið með opið frá 2017, hefði einmitt átt sér stað mánuði eftir þjóðaratkvæðið um Evrópusambandið.

Halda mætti að niðurstaða þjóðaratkvæðisins myndi ekki aðeins veita stjórnvöldum hvatningu heldur hreinlega skyldu til þess að taka til varna. Þess í stað hefði Ísland utanríkisráðherra sem neitaði hreinlega að svara því hvort unnið væri að vörn landsins vegna málsins og með hvaða hætti staðið yrði að henni. Um það væri hins vegar ekkert val. Það yrði einfaldlega að verja hagsmuni Íslands eins vel og mögulegt væri. Það væri skylda stjórnvalda óháð afstöðu þeirra sjálfra.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Eiríkur Svavarsson, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Miðflokksins. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)