Mikill meirihluti fulltrúa á landsfundi AUF, ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins, systurflokks Samfylkingarinnar, sem fram fór um síðustu helgi hafnaði tillögu um að stefnt yrði að inngöngu Noregs í Evrópusambandið. Tillagan fól í sér að AUF ætti að taka upp jákvæða stefnu gagnvart inngöngu í Evrópusambandið en með þeim fyrirvara að gert væri ráð fyrir því að Norðmenn héldu eigin gjaldmiðli og seðlabanka og ásættanlegu valdi yfir orkumálum landsins og fiskimiðum.
Haft er eftir Oda Medhus, fjölmiðlafulltrúa AUF, á norska fréttavefnum ABC Nyheter að andstaðan við inngöngu í Evrópusambandið hefði verið svo mikil og afgerandi á landsfundinum að ekki hafi verið talin þörf á að telja atkvæðin sérstaklega. Þess í stað var samþykkt stefna í alþjóðamálum þar sem hafnað var að Noregur gengi í sambandið og lýst yfir stuðningi við EES-samninginn. Þá segir að hreyfingin hafi lengi verið andvíg inngöngu í Evrópusambandið.
Forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, Jonas Gahr Støre, var gestur landsfundarins en hann hefur að sama skapi lýst því yfir fyrir hönd flokksins og ríkisstjórnar sinnar að innganga í Evrópusambandið sé ekki á dagskrá. Verkamannaflokkurinn var áður hlynntur inngöngu í sambandið en ekki haft þá stefnu undanfarin ár. Þá hafa allar birtar skoðanakannanir í Noregi í meira en 20 ár sýnt fleiri andvíga því en hlynnta að ganga í Evrópusambandið.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Hópur félagsmanna í AUF. Eigandi: AUF)
