Frumvarp Þorgerðar hefði engu breytt

Félagsmálaráðuneytið sendi frá sér fréttatilkynningu á föstudaginn þar sem vakin var athygli á dómi Hæstaréttar 23. september þar sem íslenzka ríkinu hafi verið „gert að greiða stefnanda skaðabætur vegna rangrar innleiðingar á reglum EES-samningsins í tengslum við greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Dómurinn varðaði útreikning á meðaltali heildarlauna í þeim tilfellum þar sem foreldri starfaði í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.“

Vegna rangrar innleiðingar á reglum EES-samningsins í tengslum við greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Nákvæmlega. Enda kemur fram í dómum Hæstaréttar vegna málsins að málið hafi einmitt snúizt um það að EES-reglugerð nr. 883/2004 hefði „aðeins verið innleidd með almennum stjórnvaldsfyrirmælum án þess að gerðar væru samhliða breytingar á lögum nr. 95/2000 til samræmis við umrædda skuldbindingu til greiðslu úr sjóðnum sem leiðir af samningnum.“ 

Hefði umrædd EES-reglugerð verið innleidd með réttum hætti hefði málið aldrei komið upp, stefnandinn fengið óskert fæðingarorlof og engar skaðabætur verið greiddar. Ástæðan var ekki sú að bókun 35 við EES-samninginn hefði ekki verið innleidd sem forgangsregla þvert á fullyrðingar til dæmis Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hvergi er enda minnzt á bókunina í fréttatilkynningunni. Frumvarp hennar í þeim efnum hefði engu breytt.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)