„Ég heyri fáa stjórnmálamenn tala um að það eigi að standa vörð um stjórnarskrána en það á alltaf að standa vörð um EES-samninginn.,“ sagði Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, í Dagmálum um síðustu helgi vegna bókunar 35. Tal um að standa vörð um samninginn heyrist gjarnan en hins vegar fáum við margt í gegnum hann sem hentar ekki hagsmunum Íslands eða fer beinlínis gegn þeim. Réttara er að tala um að standa vörð um hagsmuni Íslands í þeim efnum.
Talaði Sigríður enn fremur um að óþarft væri að fjalla um EES-samninginn með „þessari ofboðslegu helgislepju“ eins og oft væri raunin. Mikilvægt væri að hægt væri að benda á annmarka samningsins án þess að vera sakaður um andstöðu við hann. Varaði hún enn fremur við því að samstarfið þróaðist ekki með þeim hætti að Ísland gæti ekki gert athugasemdir eða sett fram eigin kröfur. „Hann má auðvitað ekki verða að einhverju ofbeldissambandi Íslands við Evrópusambandið.“
Full ástæða er til þess að taka undir með Sigríði hvað þetta varðar. Ekki sízt þar sem fyrirliggjandi gögn styðja ekki fullyrðingar um gríðarlegan efnahagslegan ávinning af EES-samningnum eins og gjarnan heyrast. Samningurinn er fyrst og fremst verkfæri til þess að tryggja hagsmuni Íslands og getur aldrei verið markmið í sjálfum sér. Markmiðið hlýtur alltaf að vera hagsmunir lands og þjóðar og sé hægt að tryggja þá betur með öðrum hætti hlýtur að vera vert að skoða það.
Við skiptum EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning í tilfelli Bretlands, annars stærsta viðskiptalands okkar á eftir Bandaríkjunum, á vakt Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í utanríkisráðuneytinu í kjölfar útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Viðskiptahagsmunir Íslands voru algerlega tryggðir í þeim efnum án þess að framselja vald til viðsemjandans eða taka upp íþyngjandi regluverk frá honum eins og í tilfelli EES-samningsins.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins. Eigandi: Arno Mikkor / Aron Urb – Attribution 2.0 Generic)
