Deilurnar innan Viðreisnar hófust ekki með ákvörðun Jóns Gnarr um að hætta að vera þingmaður flokksins. Sú ákvörðun er einungis afleiðing deilna innan hans um langa hríð. Þingmenn Viðreisnar sem eftir eru hafa ekki séð sér annað fært en að viðurkenna að ýmislegt væri til í harðri gagnrýni hans á stöðu mála og skort á forystu innan flokksins þó þeir hafi á sama tíma reynt að gera sem minnst úr ástandinu. Það reyndi Jón sömuleiðis lengi vel þar til hann gat það ekki lengur.
Hvað gerði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, þegar deilurnar komust í hámæli? Fór til Víetnam til þess að undirrita fríverzlunarsamning EFTA við landið sem hún hefði hæglega getað fengið annan ráðherra eða háttsettan embættismann í utanríkisráðuneytinu til að gera. Eða í það allra minnsta gengið frá því og komið síðan heim til þess að taka á málum í stað þess að fara í kjölfarið í frí á þeim slóðum með aðstoðarkonu sinni og maka hennar.
Til dæmis undirritaði Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fríverzlunarsamning EFTA við Mercosur-ríkin í Brasilíu í september á síðasta ári í stað Þorgerðar og Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, undirritaði fríverzlunarsamninga við Taíland og Kosovo undir lok janúar sama ár í Sviss í fjarveru hennar. Þá undirritaði utanríkisráðherra Noregs ekki samninginn við Víetnam heldur Astrid Bergmål, aðstoðarráðherra hans.
Með öðrum orðum tók Þorgerður undirritun fríverzlunarsamnings hinum megin á hnettinum, sem hæglega hefði mátt fela öðrum eins og næg dæmi eru um, fram yfir uppnámið sem orðið hafði innan Viðreisnar. Rökin voru þau að ferðalagið hefði fyrir löngu verið skipulagt. Eftir fríið fór Þorgerður til Kína til að ræða við þarlenda ráðamenn. Þó ekki af neinu sérstöku tilefni. Flest bendir því til þess að þetta hafi í raun og veru allt snúizt um fríið. Talandi um forystuleysi innan flokksins.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Frá undirritun fríverzlunarsamningsins við Víetnam. Eigandi: Stjórnarráðið)
