Snýst um að verja hagsmuni Íslands

Merkileg grein birtist í Morgunblaðinu fyrr í þessum mánuði eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formann Viðreisnar. Einkum vegna þess að þar reyndi Þorgerður að eigna pólitískum andstæðingum sínum framgöngu sem hún sjálf hefur öðrum fremur gerzt sek um. Að draga upp þá mynd að Ísland þyrfti að halla sér annað hvort að Bandaríkjunum eða Evrópu. Þannig dró hún til að mynda ítrekað upp þá mynd í aðdraganda þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið, eins og fleiri Evrópusambandssinnar, að við þyrftum að ganga í sambandið þar sem okkur stafaði hætta af Bandaríkjunum.

Við erum að tala um sömu Bandaríki og Marco Rubio er utanríkisráðherra fyrir, sem heimsótti Ísland á dögunum og Þorgerður tók afskaplega vel á móti. Sömu Bandaríki og grænlenzk og dönsk stjórnvöld hafa gert víðtækari samning við en áður um varnir Grænlands. Allt í einu eru ekki lengur pólitískir hagsmunir af því að draga upp þá röngu mynd af Bandaríkjunum að þau séu okkur stórhættuleg. Þjóðaratkvæðið um Evrópusambandið er búið, Þorgerður varð undir í því og ekki þörf lengur á því að reyna að hræða okkur inn í sambandið með því halda því ranglega fram að Íslandi stafi hætta af Bandaríkjunum.

Með inngöngu í Evrópusambandið, sem Viðreisn var stofnuð um á sínum tíma, hefðu tengsl Íslands við Bandaríkin orðið veikari. Vaxandi spenna hefur verið þar á milli og ekki eingöngu vegna framgöngu stjórnvalda í Washington. Viðbúið er að frekari viðskiptadeilur verði á milli sambandsins og Bandaríkjanna í framtíðinni sem við gætum þá ekki staðið fyrir utan. Vegna veru okkar utan Evrópusambandsins höfum við komið betur út úr tollum Bandaríkjanna enda ekki innan tollabandalags þess. Þá er mikill og vaxandi þrýstingur innan sambandsins á að ríki þess tali einungis einni röddu í utanríkismálum.

Tal um að eiga í samstarfi bæði til austurs og vesturs eins og Þorgerður viðhefur í greininni er auðvitað góðra gjalda vert en samrýmist hins vegar ekki inngöngu í Evrópusambandið. Fyrir það fyrsta yrði allt samstarf við Bandaríkin meira eða minna og í vaxandi mæli á forsendum sambandsins. Í annan stað er í tilfelli Evrópusambandsins samruni eitt, eins og það gengur fyrst og síðast út á í átt að lokamarkmiðinu um evrópskt sambandsríki, en samstarf ríkja á jafnræðisgrundvelli allt annað. Fyrir utan það að vægi ríkja við ákvarðanatöku innan sambandsins fer sem kunnugt er fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra.

Fleira varð Þorgerði að yrkisefni og þar á meðal bókun 35 við EES-samninginn sem hún vill óð og uppvæg innleiða sem forgangsreglu þvert á þær forsendum sem lágu til grundvallar aðildinni að samningnum í upphafi og þvert á fullveldisákvæði stjórnarskrárinnar að mati ófárra virtra lögspekinga. Þar sem innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn yrði í reynd gert æðra íslenzkri lagasetningu. Fyrst ekki tókst að fá þjóðina til þess að hefja inngöngu í sambandið, hvar regluverk þess er einmitt æðra lagasetningu ríkjanna, á engu að síður að koma slíkum forgangi í gegn.

Vegna vantrausts á Flokki fólksins batt Þorgerður vonir við að Sjálfstæðisflokkurinn myndi hjálpa við að koma frumvarpi hennar um bókun 35 í gegnum Alþingi í fjórðu tilrauninni til þess. Fyrir vikið kom það Þorgerði í opna skjöldu þegar Guðrún Hafsteinsdóttir kallaði eftir því í umræðum um frumvarpið fyrr í mánuðinum að tekið yrði til varna vegna málsins fyrir EFTA-dómstólnum eftir að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hafði vísað málinu þangað og benti á þá einföldu staðreynd að það fæli ekki í sér andstöðu við EES-samninginn að fá úrskurð dómstólsins enda einfaldlega hluti af stofnanakerfi hans.

Vonbrigði Þorgerðar birtust meðal annars í grein hennar þar sem hún gerði misheppnaða tilraun til þess að sparka í Guðrúnu og Sjálfstæðisflokkinn vegna bókunar 35. Margt hefur breytzt frá því að málið var rætt á Alþingi haustið 2025. Evrópusambandið hefur lagt á okkur tolla þvert á EES-samninginn, þjóðaratkvæðið um sambandið hefur farið fram og ESA hefur vísað málinu til EFTA-dómstólsins. Guðrún sagði í lok júlí á síðasta ári að kæmi til þess að Evrópusambandið legði tolla á Ísland þvert á samninginn fæli það í sér grundvallarbreytingu á honum. Sú varð síðan raunin í nóvember.

Hagsmunagæzla fyrir Ísland vegna EES-samningsins snýst ekki um að taka þegjandi og hljóðalaust við hverju því sem Evrópusambandinu dettur í hug að senda okkur í gegnum samninginn heldur einmitt að standa vörð um hagsmuni landsins í því samstarfi. Þar á meðal að standa vörð um þær forsendur sem lágu til grundvallar aðild okkar að honum. Hefði verið litið svo á að breyta þyrfti stjórnarskránni og gefa afslátt af fullveldisákvæði hennar vegna aðildarinnar hefði að öllum líkindum ekki orðið af henni. Vegna þess að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefði þá einfaldlega ekki stutt hana.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 27. október 2027)

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: Mfa.gov.ua – Attribution 4.0 International)