Við fáum stundum að heyra hástemmdar yfirlýsingar um það að við eigum nýja stjórnarskrá og er þá vísað í tillögur stjórnlagaráðs í þeim efnum frá árinu 2012. Hins vegar var ráðinu aldrei falið það verkefni af stjórnvöldum að semja nýja stjórnarskrá fyrir Ísland. Einungis að leggja fram tillögur um breytingar á gildandi stjórnarskrá lýðveldisins.
Til að mynda segir þannig í þingsályktun Alþingis um skipun stjórnlagaráðs samþykktri 24. marz 2011: „Alþingi ályktar að skipa 25 manna stjórnlagaráð sem fái það verkefni að taka við og fjalla um skýrslu stjórnlaganefndar og gera tillögur um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.“ Á grundvelli ályktunarinnar var ráðið í framhaldinu skipað.
Með öðrum orðum hafði stjórnlagaráð í raun aldrei heimild til þess að leggja fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá heldur einungis frumvarp sem innihéldi tillögur um breytingar á gildandi stjórnarskrá lýðveldisins. Sú ákvörðun ráðsins að ganga mun lengra en það hafði heimild til var þannig ljóslega í fullkominni andstöðu við það verkefni sem því var falið.
Krafa um að stjórnarskránni verði skipt úr fyrir nýja er fyrir vikið algerlega á skjön við þingsályktun Alþingis um skipun stjórnlagaráðs. Þá var ráðið Alþingi einungis til ráðgjafar eins og tekið var skýrt fram í greinargerðinni með ályktuninni. Rétt eins og þjóðaratkvæðið um tillögurnar haustið 2012 sem var uppfyllt þvert á það sem haldið hefur verið fram.
Meginspurningin á kjörseðlinum var þannig hvort leggja ætti fram frumvarp á Alþingi á grunni tillagna stjórnlagaráðs. Eða eins og það var orðað: „Vilt þú að tillögur stjórnlagaráðs verði lagðar til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá?“ Frumvarpið var lagt fram en ekki samþykkt. Orðalag spurningarinnar var því einnig á skjön við þingsályktun þingsins.
Tvennt er hægt að gera við tillögur stjórnlagaráðs með tilliti til umboðs ráðsins og þeirra forsendna sem lágu til grundvallar þjóðaratkvæðinu. Líta á tillögurnar eins og þær voru alltaf hugsaðar, sem innlegg í vinnu við breytingar á stjórnarskránni þar sem þess sé talin þörf eða að hafa þær að engu þar eð umrædd vinna var ekki í samræmi við umboð ráðsins.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
