Til varnar Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur

Mig langar með þessum pistli að koma Þorgerði Katínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanni Viðreisnar, á vissan hátt til varnar. Tilefnið er ummæli Össurar Skarphéðinssonar, fyrrverandi formanns Samfylkingarinnar, á Sprengisandi í gær þess efnis að fráleitt hafi verið að breyta tímasetningu þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið. Dagsetningin var vissulega fráleit en ekki af þeirri ástæðu sem Össur vildi meina. Að frekar hefði átt að halda atkvæðagreiðsluna miklu síðar.

„Ég meina, það var gerð róttæk stefnubreyting á plani ríkisstjórnarinnar og dagsetningu kosninga breytt, sem ég tel algjörlega fráleitt og hafi verið sjálfsmark og átt mikinn þátt í því hvernig fór,“ sagði Össur þannig í þættinum. Engin önnur dagsetning hafði hins vegar verið ákveðin. Aðeins er þannig talað í stjórnarsáttmálanum um að þjóðaratkvæðið færi fram „eigi síðar en árið 2027.“ Eðli málsins samkvæmt er talsverðum erfiðleikum bundið að breyta dagsetningu sem ekki liggur fyrir.

„Dagsetningin var afburðaheimskuleg. Og eins og ég sagði, ég tel að hún hafi átt mikinn þátt í ósigrinum vegna þess að hún kemur þarna beint ofan í sveitarstjórnarkosningar,“ sagði Össur enn fremur. Hann vildi sem sagt að þjóðaratkvæðið færi fram síðar. Vandinn er hins vegar sá að miðað við skoðanakannanir hafði andstaða bæði við inngöngu í Evrópusambandið og við að hefja á ný aðildarviðræður við sambandið farið vaxandi. Þetta vissi Þorgerður og vildi því flýta kosningunni.

Hefði þjóðaratkvæðið verið haldið síðar hefði ósigur þeirra sem vildu hefja inngönguferlið í Evrópusambandið að öllum líkindum orðið enn stærri. Þróunin var í þá áttina og er að öllum líkindum enn. Enda sýnir reynslan að sé innganga í sambandið sett á dagskrá eykst andstaðan við hana. Össur ætti að þekkja þetta vel. Hann ætlaði sem formaður Samfylkingarinnar að gera málið að kosningamáli fyrir þingkosningarnar 2003. Umræðan fór í gang, andstaðan jókst og hann hætti við.

Hið sama gerðist í kjölfar bankahrunsins haustið 2008 þegar Össur og aðrir forystumenn Samfylkingarinnar ætluðu að nýta sér það ástand sem skapaðist í kjölfar þess og koma okkur inn í Evrópusambandið. Stuðningur við inngöngu í sambandið jókst til skamms tíma eftir að bankarnir féllu en strax á fyrri hluta 2009 var meirihluti landsmanna orðinn andvígur henni. Þetta er eins vel þekkt í öðrum Evrópuríkjum. Til dæmis þegar Svíar höfnuðu evrunni í þjóðaratkvæði haustið 2003.

Tilgangurinn með gagnrýni Össurar í garð Þorgerðar er hins vegar augljós. Að koma ábyrgðinni á niðurstöðu þjóðaratkvæðisins alfarið á Þorgerði og fría Samfylkinguna og Kristrúnu Frostadóttur, formann flokksins og forsætisráðherra, ábyrgð á henni. Til dæmis þar sem hann sagði: „Forsætisráðherrann fór eftir því plani sem fyrir hana var lagt af einhvers konar kosningastjórn.“ Hafði Kristrún sem sagt ekkert um málið að segja, sjálfur forsætisráðherrann? Réð Þorgerður ein ferðinni?

Dagsetningin var til að mynda ekki ákveðin af Þorgerði einni og þjóðaratkvæðið var ekki haldið án samþykkis Kristrúnar. Ríkisstjórn hennar sem slík bar vitanlega ábyrgð á málinu. Hins vegar eru ummæli Össurar ein birtingarmynd þeirra deilna sem geisað hafa á milli stjórnarflokkanna frá því fyrir þjóðaratkvæðið og síðan stóraukizt eftir að niðurstaðan lá fyrir þar sem ásakanir ganga á víxl. Þær hafa að mestu átt sér stað á bak við tjöldin en eru nú að koma upp á yfirborðið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Eigandi: Alchetron.com)