Tilkynnt að þetta væri bara búið og gert

Meðal þess sem Jón Gnarr alþingismaður ræddi á Útvarpi Sögu í gær var sá klíkuskapur sem hann hefur sagt að væri til staðar innan þingflokks Viðreisnar. Sagði hann þennan klíkuskap meðal annars birtast í því að ákvarðanir væru teknar áður en fundir í þingflokknum hæfust og að þær voru síðan einfaldlega tilkynntar öðrum innan hans sem orðinn hlutur.

Komið hefur fram í fjölmiðlum að ýmsir innan þingflokks Viðreisnar hafi til að mynda fengið að vita hvenær þjóðaratkvæðið um Evrópusambandið færi fram áður en þingflokknum sem slíkum var greint frá því á fyrri hluta ársins líkt og ég fjallaði um í pistli á Stjórnmálin.is nýverið. Jón var ekki þar á meðal en hann yfirgaf þingflokkinn sem kunnugt er á dögunum.

Með þeim hætti gerast einmitt kaupin á eyrinni innan Evrópusambandsins. Áratugum saman hafa ráðamenn í Þýzkalandi og Frakklandi samræmt áherzlur sínar í málum áður en þau hafa verið rædd formlega á vettvangi sambandsins. Fámennari ríki hafa lengi kvartað yfir því að vegna fjölmennis ríkjanna tveggja væru ákvarðanir í raun teknar fyrir fram.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Jón Gnarr alþingismaður. Eigandi: Skjáskot af mbl.is)