„Ég tel sjálfsagt að fara með þetta hérna í þinglega meðferð, samþykkja bókun 35. Þá mun það fara fyrir Hæstarétt. Ég sé ekkert að þeirri meðferð,“ sagði Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra og þingmaður Flokks fólksins, í svari við fyrirspurn frá Sigurði Erni Hilmarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi 15. október um það hvort hann hyggðist styðja frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um innleiðingu bókunarinnar sem forgangsreglu þar sem innleitt regluverk frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn gangi framar innlendri almennri lagasetningu.
„Þetta er algerlega galið,“ sagði sami Eyjólfur, sem er lögfræðingur að mennt, á Útvarpi Sögu 12. september 2024 um samhljóða frumvarp þáverandi utanríkisráðherra, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, um bókun 35. Þá í stjórnarandstöðu. „Þetta gengur ekki að stjórnarskránni vegna þess að þú getur ekki sagt í almennum lögum að ein tegund almennra laga sem á uppruna sinn í Brussel gangi framar öðrum. Þú verður að gera það í stjórnarskrá, að sjálfsögðu,“ sagði hann enn fremur. Þá sagðist hann vona að frumvarpið yrði ekki að lögum enda væri það í andstöðu við bæði stjórnarskrána og fullveldi Íslands.
„Við munum allavega, sem höfum áhuga á að verja fullveldi þessa samfélags, fullveldi Íslands, þeir munu berjast gegn þessu og ég ætla að gera það,“ sagði Eyjólfur sömuleiðis. Hann hefur sagzt vera enn þeirrar skoðunar að slíkt frumvarp fari gegn stjórnarskránni eftir að hann varð ráðherra en vill nú varpa þeirri ábyrgð sinni yfir á Hæstarétt. Hins vegar er engan veginn gefið að reyna kunni á málið fyrir honum. En hvað sem því líður eiga þingmenn vitanlega ekki að samþykkja lagafrumvörp í andstöðu við stjórnarskrána sem þeir hafa unnið drengskaparheit að því að standa vörð um og hafa í heiðri.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)
