Daði: Þingflokkurinn betri eftir að Jón fór

„Mín upplifun er kannski þvert á móti að þingflokkurinn hafi aldrei staðið þéttar saman en akkúrat núna. Það hef ég fundið mjög sterkt á samskiptum mínum við þingmenn,“ sagði Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra og varaformaður Viðreisnar, í samtali við mbl.is í gær og vísaði til stöðu mála eftir að Jón Gnarr kaus að segja skilið við þingflokkinn á dögunum.

Spurður um tal Jóns um klíkumyndun innan þingsflokksins sagðist Daði ekki kannast við slíkt. „Þetta er nú að vísu ekki mín upplifun af starfi flokksins en ég held að það sé mjög mikilvægt að það sé traust á að ferlar séu skýrir og opnir og öll ákvarðanataka uppi á borðinu.“ Jón hefur einmitt sagt að ákvarðanir hafi verið teknar án aðkomu þingflokksins.

Miðað við ummæli bæði Jóns og ýmissra þingmanna Viðreisnar í fjölmiðlum má ljóst vera að ekki hafi allir í þingflokknum setið við sama borð varðandi upplýsingar um tiltekin mál og ákvarðanatöku í þeim efnum. Til að mynda varðandi dagsetningu þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið. Þeir sem eru í klíkunni kannast að sjálfsögðu ekkert við klíkumyndun.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Eigandi: Skjáskot af mbl.is)