Hátíðarhöld á fimm ára fresti framvegis?

Tvær vikur eru liðnar frá því að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, hélt til Suðaustur-Asíu. Tilefnið var undirritun fríverzlunarsamnings við Víetnam. Eins og ég hef fjallað um áður er undirskrift ráðherra hins vegar ekki nauðsyn í þeim efnum og fjölmörg dæmi um að háttsettir embættismenn hafi séð um slíkar undirritanir.

Við tók síðan nokkurra daga frí og loks heimsókn til Kína, einkum í tilefni af 55 ára stjórnmálsambandi landanna og var haldið sérstakt hóf í sendiráði Íslands í Peking vegna þess. Til þessa hafa slík tímamót ekki þótt ástæða til sérstakra hátíðarhalda og hvað þá ferðalaga ráðherra þvert yfir hnöttinn en mögulega mun slíkt eiga sér framvegis stað á fimm ára fresti.

Fram kemur á Facebook-síðu Þorgerðar að hún hafi komið heim frá Kína í dag. Þar segir hún enn fremur: „Viðskipti á milli ríkjanna skipta mörg íslensk fyrirtæki gríðarlegu máli. Og þar með þjóðarbúið.“ Væntanlega gerir Þorgerður sér þó grein fyrir því að ef Ísland gengi í Evrópusambandið, eins og hún vill ólm, yrði að rifta fríverzlunarsamningnum við Kína.

Ferðalag Þorgerðar hefur einnig þótt undarlegt í ljósi ófremdarástandsins innan þingflokks Viðreisnar sem leiddi til þess að Jón Gnarr sagði skilið við hann skömmu áður en hún hélt utan. Helzta umkvörtunarefni Jóns var einmitt forystuleysi og þá ekki sízt af hálfu flokksformannsins. Sem var að koma heim eftir hálfan mánuð erlendis af engri sérstakri nauðsyn.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Wang Yi, utanríkisráðherra Kína. Eigandi: Stjórnarráðið)