Fjórir ráðherrar hafa ekki mætt í eina einustu atkvæðagreiðslu á Alþingi það sem af er haustþinginu. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og þingmaður Viðreisnar, og Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvega- ráðherra og þingmaður Viðreisnar. Hið sama á við um Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins.
Með öðrum orðum allir þrír ráðherrar Viðreisnar sem einnig eru alþingismenn en fjórði ráðherra flokksins, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, er sem kunnugt er ekki þingmaður. Ráðherranir auk Sigmundar eru allir skráðir fjarverandi fyrir utan Kristrúnu sem var fjarverandi í 87% tilfella en með skráða fjarvist í 13%. Fjarverandi þýðir að viðkomandi þingmaður mætti einfaldlega ekki í atkvæðagreiðsluna, skrópaði hreinlega, en fjarvist að hann lét skrifstofu þingsins vita.
Þá hefur Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar, verið fjarverandi í 91,3% tilfella, Alma Möller, heilbrigðisráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar, í 87% og Inga Sæland, menntamálaráðherra og þingmaður Flokks fólksins, í 78,3%. Þá eru tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar á svipuðu róli, þau Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, og Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins. Hvort með 82,6% fjarveru.
Hafa má í huga að samkvæmt 65. grein laga um þingsköp Alþingis er þingmönnum, eins þeim sem eru ráðherrar, skylt að sækja þingfundi nema nauðsyn hindri það: „Skylt er þingmönnum að sækja alla þingfundi nema nauðsyn banni. Forföll skal tilkynna forseta svo fljótt sem unnt er og metur hann nauðsynina.“ Sama á við um atkvæðagreiðslur samkvæmt 78. grein laganna: „Skylt er þingmanni að vera viðstaddur og taka þátt í atkvæðagreiðslu nema hann hafi lögmæt forföll eða fararleyfi.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Alþingishúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
