Fram kemur meðal annars í ársreikningi Sósíalistaflokksins fyrir síðasta ár að hann hafi veitt Samstöðinni 15,5 milljóna króna vaxtalaust lán í fyrra en flokkurinn veitti útvarpsstöðinni einnig 3,3 milljóna lán árið 2022. Tæplega 90% af tekjum Sósíalistaflokksins á síðasta ári komu annars vegar úr ríkissjóði og hins vegar frá Reykjavíkurborg. Tekjur flokksins námu samtals 30 milljónum króna og þar af komu 24,5 milljónir úr ríkissjóði og 1,9 milljónir frá borginni.
Fjallað er um málið á fréttavef Viðskiptablaðsins en þar kemur fram að Samstöðin ehf., sem er í eigu félagasamtakanna Alþýðufélagsins, hafi verið rekin með 24 milljóna króna tapi á síðasta ári. Tekjur hennar hafi numið 11,2 milljónum og rekstrargjöld verið 34,9 milljónir. Eignir útvarpsstöðvarinnar hafi numið 7,9 milljónum króna í lok síðasta árs, skuldir verið 34,4 milljónir (þar af 31,8 milljónir við tengda aðila) og eigið fé verið neikvætt um 26,5 milljónir króna.
Haft er eftir Gunnari Smára Egilssyni, stofnanda Sósíalistaflokksins, í fréttinni úr færslu á Facebook-síðu hans að lánin til Samstöðvarinnar væru stuðningur flokksins við útvarpsstöðina og komi inn sem lán sem síðan megi breyta í hlutafé. Þess má geta að Gunnar Smári er skráður forráðamaður bæði Sósíalistaflokksins og Samstöðvarinnar í fyrirtækjaskrá Skattsins. Þá er hann einnig skráður raunverulegur eigandi flokksins ásamt stjórn hans, útvarpsstöðvarinnar og Alþýðufélagsins.
Fram kemur á vefsíðu Fjölmiðlanefndar að Samstöðin hafi fengið úthlutað tæpum 6,4 milljónum króna úr ríkissjóði í nóvember í árlegan rekstrarstuðning við einkarekna fjölmiðla. Markmiðið með stuðningnum er að gera einkareknum fjölmiðlum betur kleift að halda áfram að afla og miðla fréttum og fréttatengdu efni um samfélagsleg málefni. Færa má hins vegar ákveðin rök fyrir því að Samstöðin njóti óbeint fyrirgreiðslu úr ríkissjóði umfram aðra einkarekna fjölmiðla.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Íslenzkir peningar. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
