Hafa varla lagt nokkur frumvörp fram

Mæting ráðherra og annarra þingmanna í atkvæðagreiðslur á Alþingi var yrkisefni mitt í pistli sem birtist á Stjórnmálin.is í fyrradag. Vöktu þau skrif mikla athygli en þar kom meðal annars fram að fjórir ráðherrar hefðu ekki mætt í eina einustu atkvæðagreiðslu í þinginu það sem af er haustþinginu og mæting flestra annarra væri lítið betri. Þá höfðu ráðherrarnir nær undantekningarlaust einfaldlega ekki mætt í stað þess að tilkynna skrifstofu Alþingis um forföll sín.

Fram kemur í lögum um fundarsköp Alþingis að þingmönnum sé bæði skylt að mæta á þingfundi og í atkvæðagreiðslur nema um sé að ræða lögmæt forföll. Þannig segir í 65. grein laganna: „Skylt er þingmönnum að sækja alla þingfundi nema nauðsyn banni. Forföll skal tilkynna forseta svo fljótt sem unnt er og metur hann nauðsynina.“ Og síðan í 78. grein: „Skylt er þingmanni að vera viðstaddur og taka þátt í atkvæðagreiðslu nema hann hafi lögmæt forföll eða fararleyfi.“

Til varna fyrir ráðherrana var gripið af sumum og bent á að þeir hefðu fleira að gera en að mæta á Alþingi í atkvæðagreiðslur. Til dæmis kæmu flest frumvörp inn í þingið frá þeim. Sjálfsagt er að skoða það. Þeir fjórir ráðherrar sem hafa ekki mætt í eina einustu atkvæðagreiðslu eru Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.

Tvö frumvörp hafa komið til Alþingis frá Kristrúnu á haustþinginu, eitt endurflutt frá fyrra þingi um stjórnsýslulög og annað um það eitt að Hagstofan reki ekki lengur spádeild. Eitt endurflutt frumvarp hefur komið frá Þorgerði, um bókun 35 við EES-samninginn. Þrjú frumvörp hafa komið frá Þorbjörgu. Eitt um vændiskaup samið af refsiréttrarnefnd, annað einkum um það að aðsetur Landsréttar þurfi ekki að vera í Reykjavík og það þriðja endurflutt frumvarp um útlendinga.

Fjögur frumvörp hafa komið frá Hönnu Katrínu. Eitt endurflutt um ársreikninga sem felur í sér innleiðingu á EES-reglum. Annað endurflutt um hlutafélög og einkahlutafélög. Sömuleiðis EES-innleiðing. Það þriðja um neytendasamninga, einnig EES-innleiðing. Og það fjórða um framlengingu búvörusamninga um ár. Þá hafa Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Alma Möller heilbrigðisráðherra hvort komið með eitt endurflutt frumvarp.

Hvað varðar Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra, sem er utanþingsráðherra, hafa komið frá honum fjögur frumvörp. Fjárlagafrumvarpið, annað frumvarp um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga, þriðja um staðfestingu ríkisreiknings 2025 og það fjórða endurflutt frumvarp um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja. Til samanburðar hefur Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mætt í 87% atkvæðagreiðslna þrátt fyrir að sex frumvörp hafi komið frá honum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)