Fleiri þingmenn Viðreisnar hafa fengið sig fullsadda af stjórnarháttum og forystuleysi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns flokksins, en Jón Gnarr sem yfirgaf þingflokkinn á dögunum. Aðrir óánægðir í honum hafa þó enn sem komið er ákveðið að þreyja áfram þorrann í von um að Þorgerður verði ekki formaður Viðreisnar eftir næsta landsþing flokksins sem að óbreyttu fer væntanlega fram næsta haust en það síðasta fór fram fyrir rúmu ári.
Hins vegar segir einungis í samþykktum Viðreisnar að landsþing skuli haldið annað hvert ár. Fyrir vikið gæti það farið fram hvenær sem er á næsta ári ef stjórn flokksins tekur ákvörðun um það. Stjórnin er skipuð formanni, varaformanni, ritara og fjórum meðstjórnendum. Formaður boðar til stjórnarfunda en ber að gera það ef einhver stjórnarmaður óskar þess. Meirihluti stjórnar gæti ákveðið að landsþing yrði haldið fyrr en ella þó það nyti ekki stuðnings formannsins.
Vonir ósáttra þingmanna Viðreisnar eru þær að losna megi við Þorgerði sem fyrst. Talið er þó ólíklegt að aðrir stjórnarmenn fari gegn henni. Varaformaðurinn Daði Már Kristófersson og ritarinn Sigmar Guðmundsson hafa verið miklir stuðningsmenn Þorgerðar. Aðeins þarf því einn stjórnarmann til viðbótar til þess að hindra slíka hallarbyltingu. Viðreisn situr því að öllum líkindum uppi með hana allavega næsta árið. Nema hún ákveði að hætta áður að eigin frumkvæði.
Fyrir síðustu þingkosningar í lok nóvember 2024 var Þorgerður á eins konar skilorði innan Viðreisnar. Vaxandi óánægja var með hana sem formann en hún keypti sér hins vegar tíma með því að komast í ríkisstjórn enda þekkt að flokksmenn, óháð því hvaða flokk er um að ræða, fylkja sér gjarnan um formanninn við slíkar aðstæður. Hins vegar hefur sá stuðningur farið jafnt og þétt minnkandi og snarminnkað í kjölfar þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið í lok sumars.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Eigandi: Skjáskot af mbl.is)
