Vitum í raun ekki hverjir koma til landsins

Vegna aðildar Íslands að Schengen-svæðinu vitum við í raun ekki hverjir koma til landsins frá öðrum aðildarríkjum þess enda er hægt að koma þaðan án þess að framvísa vegabréfi og án þess að gefa upp rétt nafn. Þeir, sem komizt hafa í kast við lögin og/eða hafa lögbrot í hyggju, eru eðli málsins samkvæmt líklegri en aðrir til þess að veita rangar upplýsingar. Það er enda ekki að ástæðulausu að brotamenn koma nær eingöngu hingað til lands frá eða í gegnum önnur ríki innan svæðisins.

Með aðildinni að Schengen samþykktu íslenzk stjórnvöld að fella niður hefðbundið landamæraeftirlit með vegabréfaskoðun gagnvart öðrum ríkjum þess gegn því að hægt yrði að treysta því að eftirlitið á ytri mörkum þess væri í lagi. Sú hefur þó aldrei verið raunin og hafa milljónir manna komist yfir ytri mörkin með ólögmætum hætti, einkum í austri og suðri, samkvæmt tölum frá Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins. Þar er þó einungis um að ræða þá sem vitað er um.

Markmið Schengen-svæðisins er að ekki þurfi að framvísa vegabréfum innan þess. Pólitískt markmið þess er þó að vera liður í lokamarkmiði samrunaþróunarinnar innan Evrópusambandsins um að það verði endanlega að sambandsríki. Þegar einu sinni er komið inn fyrir ytri landamæri svæðisins er þar með hægt að ferðast hvert sem er innan þess án þess að framvísa skilríkjum, eins og raunin er innan ríkja, og fyrir vikið nánast gefa upp hvaða nafn sem er. Þar á meðal hingað til lands.

Helzti kosturinn við Schengen hefur verið sagður aðgangur að gagnabönkum þess en eins og til dæmis kom fram í máli Úlfars Lúðvíkssonar, þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, á Vísi í ágúst 2024 hafa lögregluyfirvöld haft takmarkað gagn að þeim. Sagði hann í fjölmiðlum að hending réði því hvort glæpamenn væru stöðvaðir á landamærunum að öðrum aðildarríkjum Schengen. Þeir slyppu gjarnan inn fyrir ytri mörkin annars staðar en hér „og svo valsa þeir innan girðinga.“

Gagnslausar farþegaupplýsingar

„Við höfum fengið samþykkt lög um farþegalista og höfum yfirsýn yfir það hverjir eru að koma til landsins,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og þingmaður Viðreisnar, í myndskeiði á samfélagsmiðlum um síðustu jól. Umrædd lög breyttu hins vegar engu um þá staðreynd að farþegalistar flugvéla sem koma til Íslands frá öðrum ríkjum innan Schengen-svæðisins eru sem fyrr í raun gagnslausir þegar kemur að eftirliti með því hverjir koma til landsins.

Fram kom í sjálfri greinargerðinni með lagafrumvarpinu hvers vegna farþegalistarnir vegna flugs frá öðrum aðildarríkjum Schengen-svæðisins eru svo gott sem gagnslausir. Það er að segja svonefndar PNR-upplýsingar. Þannig segir þar réttilega að munurinn á þeim og svonefndum API-upplýsingum, sem afhentar eru vegna flugs frá ríkjum utan svæðisins, sé sá að þeim sé safnað af flugfélögum eða ferðaskrifstofum við farmiðabókarnir en séu ekki staðfestar með vegabréfum.

„Nokkur munur er á API- (e. Advance Passenger Information) og PNR-upplýsingum (e. Passenger Name Record). Farþegabókunargögnum, PNR-upplýsingum, er safnað í viðskiptalegum tilgangi, þ.e. þær upplýsingar sem flugfélag safnar við farmiðabókun eða ferðaskrifstofa safnar við bókun á tiltekinni ferð, t.d. um greiðslumáta við farmiðakaup og hvenær bókun átti sér stað,“ sagði enn fremur í greinargerðinni með frumvarpi dómsmálaráðherra og síðan sagði áfram:

„Farþegaupplýsingum úr vegabréfum (API-upplýsingum) er hins vegar safnað við innritun farþega fyrir flug og þær eru sendar því ríki sem farþegi ferðast til. Fyrir flugferðir innan Schengen-svæðisins þarf almennt aðeins að afhenda PNR-upplýsingar en fyrir ferðir utan Schengen-svæðisins þurfa flugfélög almennt að afhenda API- og PNR-upplýsingar.“ Þess má enn fremur geta að Evrópusambandið sjálft skilgreinir PNR-upplýsingarnar fyrir vikið sem „óstaðfestar upplýsingar“.

Landamæraöryggi Íslands fórnað

Farþegalistar vegna flugs frá öðrum ríkjum innan Schengen-svæðisins, sem ætlast er til að flugfélög sem fljúgi til landsins skili til hérlendra yfirvalda, geyma þannig aðeins upplýsingar sem farþegar gefa upp þegar keyptir eru farmiðar. Flugfélögin safna þessum upplýsingum í viðskiptalegum tilgangi en ekki með tilliti til öryggismála. Fyrir vikið er nánast hægt að gefa upp hvaða nafn sem er við kaup á flugmiða til Íslands enda ófá dæmi um slíkt og vafalítið miklu fleiri sem ekki er vitað um.

Fram kom í ávarpi sem Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, flutti á málþingi á vegum Lögfræðingafélags Íslands 18. október 2002 að Schengen mætti telja eðlilega þróun á meginlandi Evrópu. Annað væri með eyríki eins og Ísland „sem af landfræðilegum ástæðum hafa alla burði til að halda uppi öflugu landamæraeftirliti og ná að því leyti sama eða jafnvel mun betri árangri en að er stefnt með Schengen-samstarfinu.“ Þess í stað hefði verið treyst á ytri mörk svæðisins.

Meðal þess sem Þorbjörg gerði fljótlega eftir að hún tók við embætti dómsmálaráðherra var að funda með Hans Leijtens, forstjóra Frontex. Sagði hún af því tilefni í fréttatilkynningu að Evrópusambandið hefði á liðnum árum unnið að því að styrkja ytri mörkin. Leijtens hefur hins vegar lýst sig andsnúinn því að styrkja þau ólíkt forvera hans og hafði þýzka dagblaðið Welt til að mynda eftir honum í janúar 2024 að ómögulegt væri að koma í veg fyrir ólögmæta för inn á Schengen-svæðið.

„Svo ég segi það bara hreint út: Ekkert getur komið í veg fyrir að fólk fari yfir landamæri. Enginn veggur, engin girðing, ekkert haf, engin á,“ sagði Leijtens þannig. Eina leiðin væri að reyna að hægja á ólöglegum straumi fólks yfir ytri mörkin og stjórna honum betur. Ísland er hins vegar í allt annarri stöðu þar sem haf umlykur ekki aðeins landið heldur er það langt frá meginlandi Evrópu en með aðildinni að Schengen var þeim landamærum frá náttúrunnar hendi að verulegu leyti fórnað.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Greinin birtist áður í Morgunblaðinu 3. nóvember 2026)

(Ljósmynd: Frá Keflavíkurflugvelli. Eigandi: Jeff Hitchcock – Creative Commons Attribution 2.0 Generic)