Hvað með daður Þorgerðar við Kínastjórn?

Fyrir 75 árum innlimuðu kínversk stjórnvöld Tíbet í Kína í kjölfar orrustunnar við Chamdo sem háð var árið á undan. Allar götur síðan hafa þau kúgað tíbetsku þjóðina. Íbúar Taívan hafa áratugum saman búið við þá ógn að kínverski herinn ráðist á landið. Ráðamenn í Kína gera tilkall til Taívan og telja að landið eiga að heyra undir stjórn þeirra þvert á vilja íbúanna. Þá erum við ekki farin að ræða áratuga kúgun alræðisstjórnarinnar í Kína á eigin þegnum og mannréttindabrot gegn þeim.

Fyrir nokkrum dögum var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í heimsókn í Kína og fundaði þar til dæmis með Wang Yi, utanríkisráðherra landsins. Kínverska utanríkisráðuneytið hafði eftir henni á vefsíðu sinni að ritverk Xi Jinping, forseta Kína, um stjórnarhætti „væru mikill innblástur og einkum sú stjórnunarspeki sem setur fólkið í öndvegi.“ Eins að Ísland skildi og virti þá afstöðu kínverskra stjórnvalda „að tryggja fullveldi Kína og yfirráð yfir landssvæðum“.

Fyrr í vikunni var Þorgerður í umræðum á Alþingi innt eftir viðbrögðum við þeim ummælum Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins, á dögunum við færslu Emmanuels Macron, forseta Frakklands að hann ætti að senda hermenn til Úkraínu og vera reiðubúinn að beita kjarnorkuvopnum. Þorgerður brást ekki sízt við með því að ræða um Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta lýðveldisins, þar sem hún sakaði hann um að „hossa Rússum.“

Hvað með daður Þorgerðar við Kínastjórn samkvæmt kínverska utanríkisráðuneytinu, útlegging sem hérlend stjórnvöld hafa ekki mótmælt, og hrós hennar í garð ritverka forseta landsins? Eða hoss svo notað sé hennar orðfæri. Lands sem er alræðisríki og gefur lítið fyrir mannréttindi þegna sinna, innlimaði Tíbet á sínum tíma með hliðstæðum hætti og ráðamenn í Rússlandi eru að reyna í tilfelli Úkraínu og hefur ógnað nágrannalandi sínu Taívan með hervaldi áratugum saman?

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Ren Gang, borgarstjóri kínversku borgarinnar Qingdao. Eigandi: Stjórnarráðið)